Alþýðumagasín - 01.11.1933, Qupperneq 12
hátt. Þeir höfðu lokað hana niður
í ísköldum neðanjarðarkjallara
eina frostnótt, rifið af henní öll
klæði, og helt i sífellu yiir hana
nakta ísköldu vatni. Svo skildu
þeir hana eftir á beru steingólf-
inu. — í þrjá sólarhringa létu
þeir hana kveljast þar á þennan
hátt. Þá tóku þeir hana og fluttu
í herbergi sitt, en hún var
þá svo aðframkomin, að hún
mátti ekki mæla og að dauða
komin. —
Þeir kölluðu á læknirinn en hún
gat ekkert hljóð frá sér gefið og
átti aðeins örlitla stund ólifað. —
Hann -gat því ekki annað gert en
skrifa dánarvottorð er hljóðaði
upp á lungnabólgu, þar eð hann
gat ekkert grunsamlegt séð.
Það var tilviljun ein, að þetta
komst upp. — Tony hafði hrósað
sér af illverkinu, meðal glæpa-
félaga sinna. Þegar þeir gerðu
kröfu til að fá hlutdeild í eignum
hinnar látnu, en hann neitaði,
skrifuðu þeir nafnlausa bréfið og
Ijóstruðu síðan öllu upp,
Tony Marino var dæmdur til
dauða 25. október síðastliðinn og
dómurinn framkvæmdur þegar, —
en tveir þeirra sem höfðu aðstoð-
að hann, voru dæmdir í æfilangt
fangelsi í Sing-Sing.
Gerhart Hauptmann.
EINN helsti rithöfundur Þjóð-
verja á síðari tímum og einn
af mikilvirkustu skáldum og rithöf.
Evrópu i seinni tíð. Eftir Haupt-
mann hefir lítið verið þýtt á ís-
Iensku. Hann fékk Nobelsverð-
launin 1912. — Smágrein um
hánn mun ef til vill birtast í Al-
þýðu-Magasíninu á næstunni.
10