Alþýðumagasín

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumagasín - 01.11.1933, Qupperneq 17

Alþýðumagasín - 01.11.1933, Qupperneq 17
og láta hattinn slúta. —» Ef til vill sjáum við ungu stúlkuna ganga framhjá unga manninum, með |3óttasvip án þess að heilsa og ganga brosandi móti öðrum ungum manni. Hver veit. — En ef við aðeins stæðum eins og maðurinn á horninu, trúfastlega þar hvern dag, mundum vér fyr eða síðar sjá endirinn. Og meðan þessi saga er að gerast á götunni, — höfum vér séð fjölda annara æfintýra byrja eða enda. — Og jafnframt streyma auka-persónur í tugum og hundruðum fram og aftur um leiksviðið. Við sjáum langan og horaðan góðtemplara með þyrkingslegan vandlætingarsvip mæta sætkendum náunga, sem ljómar af lifs-ánægju. Lögregluþjónarnir spigspora fram og aftur háir og herðibreiðir, með öll sýnileg ytri tákn þess, að það séu þeir sem nákomnastir eru götunni og herrar hennar. Við sjáum koma fram fólk frá Ingólfs- stræti og Þingholtsstræti, — frá Vatnsstíg og Vitastig, frá Barón- stíg og Bröttugötu. — Þeir koma háir og lágir, — vel klæddir og gauðrifnir, — hungraðir og saddir, feitir og horaðir, — reiðir og glaðir, — og við lesum sögu þeirra í svip og hreifingum, — sögu þess dags sem er að liða framhjá. * * * En áhoifandinn má ekki gleyma götunni fyrir mennina. — Hon- um verður að vera lióst að alt það sem framhjá fer er í nánu sam- bandi við götuna sjálfa. — Hver einstaklingur er þátttakandi í lífi hennar, hvort atvik, þáttur úr sögu hennar. Og við sjáum að hver og einn, tekur sína sérstæðu afstöðu til hennar. Það er nú til dæmis prúðbúni maðurinn þarna með yfirlætis- svipinn, — hvert skref hans, hver hreifing segir okkur að hann telji sig eiga alla götuna, — og hinir umfarendurnir séu honum óvið- komandi Sællegi, góðlátlegi inatvörukaupmaðurinn sem 'kemur á eftir hon- um, og er auðsæilega nýbúinn að borða góðan miðdegisverð, kálfssteik og blómkálssúpu eða aðra uppáhaldsrétti sína. — Hann er sýnilega hæðst ánægður með þá litlu hlutdeild sem skref hans gefa honum i götunni, — ofurlitla rönd af gangstéttinni. En þarna kemur gamall maður lotinn í herðum. Gamli frakkinn 15

x

Alþýðumagasín

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumagasín
https://timarit.is/publication/685

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.