Alþingistíðindi Kaplaskjóls - 01.01.1926, Blaðsíða 7
13
Alþingistíðindi Kaplaskjóls
14
skuli krónuna eða ®|®. Þar sem vjer nú
höfum krónuna en útlendingar
ætti hver sannur Kaplskvlingur að láta
það vera metnaðarmál sitt að skara eld
að Kaplaskjólskökunni og láta stýfinguna
koma niður á hinum.
Líii maður á fjárhagshlið málsins, blasir
ekki annað við en einsýnn gróði. ]eg vil
segja stórgróði.
Allar sparisjóðsbækur Kaplskýlinga
myndu stórhækka í verði og verða á end-
anum með öllu ófáanlegar.
Rúgtunnan sem nú kostar 2 ® myndi
þá kosta 2 H, en hvað gerir það til þegar
að meira en helmings verðmunur er orð-
inn á ®inu. Sem dæmi upp á þjenustuna
má nefna það, að útflutningsprís á grá-
sleppuhundraði er kr. 22 eða sem svarar
einni rúgtunnu, eða einu ®i með núver-
andi gengi, en með þessu fyrirkomulagi
myndu fást tvær rúgtunnur fyrir grásleppu-
hundraðið. Scm yrði niðurstaðan með
landbúnaðarafurðir allar.
Allar erlendar vörur svo sem trollarar
myndu falla um helming í verði og blóma-
öld rísa upp, af rústum dýrtíðarinnar.
Lággengisöld ]óns Þorlákssonar myndi
rætast við þetta hágengi á okkar pening-
um.
Allar fasteignir í landinu myndu meira
en tvöfaldast í verði og mun það auka
lánstraust landsins ómetanlega út á við.
Fjármálaráðherra mun vera mjer fyllilega
sammála um að svona beri einmitt að leika
á útlendinginn, að lækka hans mynt um
helming, eftir að hafa slegið hann um
þessar miljónir.
]eg og géngisnefndin höfum hjer fundið
samleið fyrir alla þá sem vilja stýfa,
og hina sem vilja hækka, því þetta
frumvarp hækkar krónuna og stýfir um
leið.
Samþ.
Frv. t. I. um friðun refa.
Fl.m. 2. þm. Ks.: Eins og þing-
mönuum er kunnugt liggur frammi í Iestr-
arsal þingsins frá öllum þingmálafundum
landsins áskorun um að friða refi alla og
veita ríflegan styrk til nýbýla fyrir refa-
ræktun, rekna með reykvísku fyrirkomulagi.
]eg og allur minn flokkur erum þess
fullvissir orðnir að sauðkindin getur ekki
lengur verið uppistaða ísl. búskapar, og
þarf því eitthvað að breyta til, svo við
ekki drögumst aftur úr öðrum menningar-
þjóðum.
Frændur vorir Norðmenn eru svo langt
komnir í refarækt, að til orða hefir komið
að þeir sluffi allri annari útgerð, þar á
meðal síldveiði og laxaklaki, og gefi sig
eingöngu að refaræktinni.
Nú er hár tollur á ull í Ameríku, þótt
stjórninni hafi tekist að lækka hann að
nokkru, og tollur á kjöti í Noregi sem er
alltilfinnanlegur fyrir oss sveitabændur, á
meðan að kæliskipið hefir ekki grætt svo
mikið, að öðru verði viðbætt.
Til samanburðar við refaræktina skal
jeg tilfæra hvað hvort um sig leggur sig
á blóðvelli.
Sauðkindin: Sviðin kr. 1.50
Innvols — 2.00
Görnin — 1.00
Mör eftir fitumagni
Kroppurinn eftir þyngd
og svo gæran eftir sameiginlegum kaup-
taxta Garðars Gíslasonar og S. I. S.
Eins og menn sjá, er útkoman ekki
glæsileg. Og sje það tekið með í reikn-
inginn, að því þyngri sem kroppurinn er,
þess hærri verður kjöttollurinn, svo við
sleppum betur við tollinn þess rýrara sem
fjeð er, en mestur sparnaðurinn í tolli til
Normanna yrði þó sá, að ekkert kjöt væri
útflutt —.
Refurinn á hinn bóginn gefur af sjer