Morgunn


Morgunn - 01.07.1974, Page 58

Morgunn - 01.07.1974, Page 58
56 MORGUNN bróðir Gunnlaugs, O.J., óljóst eftir því, að Gunnlaugur hefði þekkt afa ungfrú E þegar Gunnlaugur vann í tvö ár í Reykja- vík á skrifstofu, sem vinur afa ungfrú E. átti. Aðspurður sagði afi ungfrú E., að hann hefði oft heimsótt eigandann á þessari skrifstofu þótt hann myndi ekki eftir Gunnlaugi .Tónssyni. Þess má geta, að Gunnlaugur hafði unnið á þessari skrifstofu um sautján til átján árum áður og að afi ungfrú E. er nú há- aldraður. Ungfrú E. hafði aldrei áður setið fund með Hafsteini. Frá- sögnin, sem átti við ungfrú E., var sú eina þar sem tókst með sæmilega öruggri vissu að kannast við allar persónurnar, sem var minnzt á. Á hinn bóginn fengum við nokkrar skýrslur þar sem ekki tókst að kannast við neina persónu. 1 einu öðru tilfelli staðfestu meðlimir fjölskyldu fundar- manns fyrstu lýsinguna, sem hann valdi með því að þekkja annað fólk, sem kom við sögu. í þessu tilfelli valdi fundargest- ur, sem er gift manni af rússneskum ættum, skýrsluna ein- göngu á grundvelli lýsingar miðilsins á fólki, sem talaði rúss- nesku. Rússnesk nöfn voru nefnd, en ekki var hægt að kannast við þau. íslenzkir foreldrar þessa fundargests völdu hins veg- ar þessa lýsingu eingöngu vegna nokkurra íslenzkra nafna, sem þau þekktu, en þó ekki með öruggri vissu. í öðru tilfelli þekkti annar fundarmaður (kona) aðeins með öruggri vissu eina manneskju, sem var ekki skyld henni, en hún hafði þekkt hana. Eftir frekari rannsókn tókst okkur að bera kennsl á aðra manneskju, sem var lýst ásamt hinni fyrri. Síðari persónan, en hana þekkti fundargestur alls ekki, reynd- ist hafa unnið með persónunni, sem fundargestur hafði kann- azt við. Þær höfðu báðar farizt í sama slysi. Tilfelli sem þessi, sem E.H. hefur einnig tekið eftir á fundum Hafsteins þar sem minna eftirlit er haft virðast útiloka tilgátur um að skynjun Hafsteins sé til komin fyrir hugsanaflutning. 1 öðru dæmi kannaðist mágur fundarmanns greinilega við tvær persónur, sem var lýst í frásögn miðilsins þótt fundar- maður hefði sjálfur ekki kannazt við nokkra persónu í lýsing- unni eða nokkrum öðrum lýsingum og hefði getið sér rangt til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.