Morgunn


Morgunn - 01.07.1974, Page 83

Morgunn - 01.07.1974, Page 83
VÍGSLA DAUÐANS 81 og bjartari og dýrmætari, ef horft er um leið á hinn svarta bakgrunn dauðans, sem gefur mynd lífsins dýpt og draum- rými. Ég nefndi hinn svarta bakgrunn, vegna þess að enda þótt ógnir dauðans eigi og hljóti smám saman að hverfa úr vitund manna fyrir ljósi nýi'rar þekkingar og skilnings, verð- ur vígsla hans þó alltaf alvarlegs eðlis, og alltaf hlýtur ein- hver óvissa að ríkja í kringum hana, að því er snertir hvern einstakling. Á þessum síðustu og verstu tímum má segja að heilir þjóð- flutningar hafi átt sér stað frá hinu jarðneska tilverusviði yfir á hið ósýnilega tilverusvið. Milljónir manna í blóma lífsins hafa tekið hina miklu vígslu dauðans, og milljónir manna hafa fengið sínar minni háttar vígslur sorgar og erfiðleika á hinu jarðneska tilverusviði. Fátt er svo illt, að ekkert gott sé i för með því, og svo er einnig hér. 1 síðustu heimsstyrjöld færðist spíritisminn mjög í aukana. Syrgjandi menn og konm- Vildu fá eitthvað að vita um horfna ástvini, og til eru margar merkilegar sögur um það, að hinum dánu hafi tekizt að kom- ast í samband við ástvini sína hér á jörðinni og sanna þeim það, að þeir væru ekki orðnir að engu, þótt þeir hefðu misst hið jarðneska starfstæki. — Eins mun fara í þetta sinn. Sorg- in og söknuðurinn munu ganga í lið með þekkingarþrá mann- kynsins og í sameiningu munu þau knýja á hinar luktu dyr. Og enn mun spíritisminn færast í aukana. — Dauðinn mun enn sem fyrr vekja margar sálir, sem áður voru sofandi eða í svefnrofum aðeins. Og sambandið við annan heim mun taka miklum framförum. Þess er að vænta, að hinn vitræni og vís- mdalegi spíritismi komi mannkyninu betur og betur til hjálp- ar og styrki þá, sem veikir eru í „trúnni“, en þeir eru margir nu á dögum, og fer ört fjölgandi. Ekkert nema aukin þekking °g skilningur fullnægir þörfum og kröfum mikils meiri hluta nutimamanna, jafnt i andlegum efnum sem öðrum efnum. Fegar það, sem gerist, þegar maður „deyr“, sem kallað er, er orðið einn þáttur náttúrufræðinnar, þá fær mannsandinn unn- tð einn af sínum stærstu sigrum, og þá mun margt gerast sam- timis. Þá mun t.d. áhugi mannkynsins á andlegum málum 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.