Sjómaðurinn - 01.03.1939, Blaðsíða 19

Sjómaðurinn - 01.03.1939, Blaðsíða 19
SJÓM AÐURINN 11 EINAR JÓNASSON; Fyrsta og eina barkskipi Islendinga siglt heim. T7ORIÐ 1919, í byrjun maí, kom eg til Varberg í Svíþjóð á dönsku skonnert-bryggi, J. M. Nielsen frá Rudköbing. Eg afskráðist þar og fór vfir til Kaupm.hafnar. Þá var Jóbannes Reykdal l'rá Hal'narfirði þar og réðist eg bjá liönum, þvi að í ráði var að bann keypti skip, sem átti að ferma timbur til íslands í Svíþjóð. Skömmu eft- ir að eg rcðist iijá Rcykdal, keypti bann bark- skipið Eos frá Stokkbólmi, cn það skip hafði þá legið í Kaupmannahöfn á þriðja ár. Skipið var um 40 ára gamalt, en leit ekki mjög illa út, þegar tekið var tillit til þess live langt var um- liðið síðan það hafði verið i notkun. Eg réði mér nú strax 6 menn, 3 íslendinga og 3 Dani og var byrjað að úll)úa skipið. Það var mikið verk, því að flestar rár höfðu verið teknar niður á þilfar. Mikið þurfti að endurbæta allt blaupandi tóverk og sauma mest af seglunum að nýju, líka þurfti að liafa braðan á svo að bægt væri að nota sumarið til ferðarinnar heim. Það mun hafa verið í byrjun .júní, að lagt var af stað frá Kaupmannahöfn, snemma að morgni dags. Dráttarbátur frá Gautaborg kom og átti hann að draga skipið til Ilalmstað. Skip- ið var enn undir sænsku flaggi og bafði eg ekki leyfi til að færa það mcðan það var sænskt. Ilafði eg nokkrar áhyggjur út af þvi, að við mundum verða stöðvaðir, þegar við færum fram lijá tollbúðinni. Nú kom hafnsögumaður um borð og var svo lagt af stað með sænsku flaggi við hún. Er við komum að tollbúðinni var kallað og spurt bvert skipið ætti að fara og hvað sldp- stjórinn héti. Sagði eg þeim ])að, en föðurnafn mitt gat bæði verið sænskt og íslenzkt, og gekk ])etta eins og í sögu. Við komum svo til Halmstad seint um kvöld- ið, þar tókum við hafnsögumann að nýju og var svo lagsl að bryggju. Það bafði verið ákveðið, að skipið færi þar i slipp til lireinsunar, en þeg- ar til kom var ekki hægt að fá þar afgreiðslu vegna þess, bve mikið var að gera. Var þvi lekið ])að ráð að halla skipinu sitt á bvað og það síðan skrapað með löngum skröpum, það sem til náð- ist, en það sýndi sig seinna, að þetta kom að litl- um notum. Nú var ski])ið úthúið af kappi, seglum slegið Barkskipið „Eos“. undir, flestum nýjum og öðrum mjög mikið endurbættum, reiðinn var endurbættur og allt lilaupandi lóverk sett upp nýtt. Skipið var hlaðið af timbri og eftir að liafa legið um mánuð í Halmstað, vorum við tilbúnir að sigla, að öðru leyti en því, að það vantaði leyfi frá sænsku stjórninni fyrir því, að selja mætti skipið, því að um þetta leyti var útflutningsbann á skipum í Sviþjóð og urðum við að bíða eftir því í 10 daga. Það kom ])ó að lokum, og er það var fengið, var lögskráð á skipið lijá danska konsúlnum í Halmstad og var þessu öllu lokið seinnihluta laugardags. Skipsliöfnin var 8 manns, auk skipstjóra. Var nú ákveðið að sigla snemma á sunnudagsmorgun, ef vindur yrði hagstæður og átti dráttarbátur að draga okkur út úr höfn- inni og hafnsöguniaður að vera þá til laks. Þetta gekk allt að óskum. Suðaustan gola var um morguninn og ágætis veður, bafnsögumaðuinn kom um borð og dráttarbáturinn að skipshlið* inni, síðan var Eos dreginn út, öll segl sett upp, dráttarbáturinn kom aftur upp að og hafnsögu- maðurinn kvaddi og óskaði okkur góðrar ferð- ar. Eos gamli seig þunglamalega áfram fyrir sinum eigin seglum. Var stefna tekin norður mcð Svíþjóð út Kattegat. Tundurduflabelti bafði verið lagt i Kattegat, en sund voru með því bæði Svíþjóðarmegin og meðfram jósku ströndinni. Við fórum út með Svíþjóð og gekk allt vel og liöfðum golu á eftir út i Kattegat. Þegar komið var út i Skagerak sletti i logn og fór svo að leggja inn öldu frá

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.