Sjómaðurinn - 01.03.1939, Side 40
32
S JÓMAÐURINN
um væri um það rætt, að íelagið gengi i sam-
band við önnur félög. Þörfin á því var félags-
mönnum þó ljós, og upp úr 1930 er farið aö
ræða um það, að ganga i Alþýðusamband ís-
lands og var á árinu 1931 látin fara fram alls-
iierjar atkvæðagreiðsla innan félagsins, þar sem
sérhver meðlimur var spurður um vilja hans i
þessu efni. Var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða að ganga í Alþýðusamband-
ið, en þó beið það þar til á árinu 1932, að fé-
lagið gekk í sambandið. Vinsamleg samvinna
hefir altaf átt sér stað við stjórn Vélstjórafé-
lags íslands, og einkum þó liin síðari ár.
Fyrstu árin var félagið mjög fámennt og aug-
sýnilegt að þeir, sem próf tóku á Stýrimanna-
skólanum og höfðu rétt til að vera í Stýrimanna-
félaginu, sáu ekki nauðsyn þess, að ganga i fé-
lagið. Þvi var það, að samkvæml tillögu Frið-
riks Ólafssonar, núverandi skólastjóra, var kos-
in útbreiðslunefnd, 9 manna, 1922, með það fyr-
ir augum, að vekja atliygli á félaginu og afla því
meðlima. Varð af þessu talsverður árangur og
fjölgaði meðlimunum nokkuð ört.
Oft voru uppi raddir um það, að félagið þyrfli
að koma upp bókasafni um siglingafræði og það
annað, sem viðvíkur starfi stýrimanna, og var
aðalhvatamaður þessa Jón Eiríksson, núverandi
skipstjóri. Var tillögum hans alt af vel tekið,
en lítið varð úr framkvæmdum, sem stafaði af
því, hversu stýrimenn voru dreyfðir og ennfrem-
ur af því, að þann stulta tíma, sein þeir dvöldu
i heimahöfn, þurftu þeir að nota lil ýmsra starfa
fyrir heimili sín og annað því líkt.
Á síðastliðnu ári voru tilliigur um þetta efni
endurnýjaðar, jafnframt þvi, sem ákveðið var
að félagið gæfi út blað. Er þcss því að vænta,
að jafnframt því, sem blaðaútgáfa l'élagsins
hefst, þá eigi meðlimir |>ess jafnframt á næstu
mánuðum kost á þvi, að ía góð útlend tímarit,
og erlend félagsblöð, með nýjungum í siglinga-
fræði og annað það, sem að starfi þeirra lýtur.
Formenn félagsins hafa verið frá stofnun þess
Jiessir menn: Jón Erlendsson, Ásgeir Jónasson,
skipstjóri, Páhni Loftsson, forstjóri, Lárus Blön-
dal stýrimaður, Þorvarður Björnssn yfirhafn-
sögumaður og Jón Axel Pétursson liafnsögu-
maður.
í félaginu eru nú allir starfandi stýrimenn á
siglingaskipaflotanum og varðskipunum og auk
]>ess allmargir, sem ekki eru starfandi stýrimenn,
en sem réttindi liafa i utanlandssiglingum.
Hér að framan befir verið getið um nokkra
aðaldrætti úr stanfssögu Stýlrimaimafólagsins.
En auk þeirra má gela þess, að félagið hefir
ávallt tekið virkan þátl í baráttu fyrir umbót-
um á lögum um atvinnu við siglingar og barist
gegn því, að þeim væri breytt í lakara horf fyr-
ir sjófarendur.
Þá niá geta þess, að félagið tók þátt í sjó-
mannadeginum, sem haldinn var hátíðlegur í
fyrsla sinn s.l. vor. Hafði félagið tvo fulltrúa, er
störfuðu að undirbúningi hans og svo mun enn
verða.
Víbtaí uíb fóhsta fioAmcmn
Stý.>iLM<mncL(lé(lcLQ.SLns.
TÓN ERLENDSSON, verkstjóri lijá Eim-
J skipafélagi Islands, var fyrsti formaður
Stýrimannafélagsins, og lil að hyrja með var
liann ekki einungis formaður íelagsins, lieldur
og gjaldkeri þess. Átti liann og • aðalþáttinn i
stofnun félagsins. Blaðið sneri sér lil Jóns Er-
lendssonar um daginn, og spurði hann um fyrstu
ár félagsins.
„Eins og gefur að skilja,“ sagði Jón Erlends-
son, „var það mjög miklum erfiðleikum bund-
ið, að koma á fót skipulegum félagsskap með-
al stýrimanna, þar sem þeir voru til að byrja
með, þegar við stofnuðum félagið að minsta
kosti, mjög fáir og auk þess, eins og gefur að
skilja, sjaldan, eða svo að segja aldrei, heima
heldur dreifðir með skipunum út um alt.
En okkur fanst nauðsynlegt, að stofna félag,
svo að stýrimenn gætu komið fram sem ein heild
i samningum sínum við atvinnurekendur, sem
voru þó aðeins til að byrja með Eimskipafélag-
ið og rikisstjórnin. Það var margt annað, sem
varð þess valdandi, að við stofnuðum félagið,
en þó auðvitað fyrsl og fremst það, að stýri-
mönnum fanst þeir væru nokkuð afskiftir í kjör-
um, og að þeir álitu, að þeir fengju litlu um
þokað til úrbóta, rneðan þeir voru ekki ein fé-
lagsleg lieild. Það var ýmislegt, sem þurfti úr-
bóta við, og ég verð að segja það, að ég lel, að
félaginu liafi á þessum 20 árum, sem liðin eru
síðan við stofnuðum félagíð, tekisl að koma
mörgu góðu til leiðar, lil umbóta á kjörum stýri-
manna. Ástæðan til þess að mér var til að byrja