Sjómaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 16

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 16
10 SJÓMAÐURINN SAGA VITANNA : Eddystone-vitinn og hin sögu- lega smíði hans fyrir 252 árum. 1 síðasta hefti Sjómannsins birtist upphaf að sögu vitanna. Hér fer á eftir framhald þessarar fróðlegu greinar. II. AÐ er hægt að fullyrða, að enginn viti, hvorki fyr á tímum, eða í nútíðinni, hafi átt eins sögulega æfi og Eddystone-vitinn. Fáir eða engir vitar eiga eins merkilega sögu. Kddystone, en vitinn her nafn silt af þessu orði, þýðir hverfisteinn. Það er þó ekki átt við það, að steinn snúist um sjálfan sig, heldur hitt, að vatnið, eða sjórinn í kring um hann, er altaf á hringiðu. Það snýst um sjálft sig, hamast í ofsalegri hring- iðu, er aldrei kvrt eða rólegt. Steinn þessi gnæfir innihalda ca. % tonn af mjög sterku sprengiefni, en sprenging þess er alveg nóg til þess að sökkva eða orsaka alvarlegar skemdir á hvaða kaupfari, sem vera skal. Til allrar hepni er þó aðeins liægt að nota þessi tundurdufl (með nokkrum árangri) á mjög grunnu vatni. Eins og áður er á minst, er það segulmagn skipsins, sem orsakar sprengingu duflsins, og þess vegna eru varnirnar gegn ]jeim beinlinis í þvi fólgnar að gera skipin ósegulmögnuð. Þetta er gert á þann hátt, að rafmagnsleiðslur eru vafðar um allan skrokk skipsins, en með því að hleypa straum í gegnum þær, er hægt að framleiða seg- ulmagn, sem vinnur á móti seguhnagni skipsins, ]). e. a. s. gerir skipið ósegulmagnað. Hve langar leiðslur eða sterkan straum þarf í hverju einstölui skipi, má finna með þvi að mæla með sérstökum tækjum, hve sterkt segulmagn skipsins er. í mjög stórum skipum gela leiðslurnar orðið alt að 10 milur á lengd. í þessu sambandi má minnast á það, að skip, sem eru útbúin á þennan liátt, verða að nota tvenskonar segulskekkjutöflur fyrir kompása sína, — önnur taflan er notuð þegar straumur er á Ieiðslunum, en hin, þegar þær eru ekki notaðar. (Lauslega þýtt og stytt). Framhald hinna fróðlegu og skemtilegu greina um fræga vita. upp úr botni Ermarsundsins, nokkru norðar en stefnan er milli Lizard Point og Star Point, 14 sjó- mílum suðvestur af Plymouth og í réttri stefnu inn og úl um Plymouthsundið. Um allar aldir liafa fjöldamörg skip farisl við þetta sker. Mjög oft hafði verið rætt um að byggja vita á þessu hættu- lega skeri, en allaf höfðu menn látið sitja við áætl- anir einar, því að menn töldu ákaflega líldegt, að ómögulegt myndi reynast að festa steypuna við þennan dranga, sem aðeins skagaðí skáhalt upn úr sjónum við háflæði og var umvafinn hinum sterkustu og viltustu straumum, svo að jafnvel þjóðsagnir mynduðust um að allir æstustu kraft- ar náttúrunnar hefðu sameinast um að gera hann að óvinnandi borg. Það var líka talið alveg óhugs- andi, að leggja vitaskipi þarna, því að dýpið var mjög mikið og sjávarbötninn þar ótryggur. Árið 1696 kom þó maður nokkur, Henry Win- stanley að nafni, með uppáslungu um að byggja vita á skerinu og hvernig skyldi farið að því. Eftir miklar atliugnair var áætlun lians samþykt. Þessi Winstanley hafði engin tengsl við sjóinn eða siglingarnar, hann var að eins smákaupmaður i bænum Littlebury i Essex. Hann hafði ekkert vit á byggingalist og þvi siður á vitabyggingum yfir höfuð. Oft liafði þessi maður þó vakið á sér nokkra athygli fyrir einkennilega mikla vélfræðisnilli af ólærðum manni að vera. Þetta vélagrúsk hans hafði jafnvel haft þær afleiðingar, að íbúarnir i ])essu litla þorpi héldu, að hann væri ruglaður í ríminu og tóku litið mark á honum. Þessi saga var til dæmis sögð af honum: Hann átti húgarð utan þorpsins. í gestastofu þessa bú- garðs hafði hann komið fyrir einhverskonar véla- útbúnaði, sem hann setti i gang. þegar gestir komu

x

Sjómaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.