Sjómaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 19

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 19
SJÓMAÐURINN Fjórir stýrimenn eiga afmæli 'p.IÖlllR KUNNIR sjófarendur og félagar i Stýrimannafélagi fslands hafa átt merkis- afmæli síðan síðasla blað af Sjómanninum kom út. Þessir menn eru: Jón Ólafsson, fyrsti stýrimað- ur á Lagarfossi, Sigmundur Signnmdsson, fyrsti stýrimaður á Dettifossi, Sigurður Cxíslason fyrsti stýrimaður á Brúarfossi og Bertel Andrésson, ann- ar stýrimaður á Goðafossi. Það eru einmitt menn á borð við þessa fjóra fóstbræður, sem liafa með starfi sínu bygt upp Eimskipafélag Islands og átt drjúgan þátt í að skapa gæfu þess. Allir eru þess- ir menn ágætir félagar í Stýrimannafélaginu og hafa sýnt mikinn félagsþroska, enda gegnt ýms- um trúnaðarstörfum fyrir samtökin og leyst þau af hendi með liinni mestu prýði. Sjómaðurinn hefir haft tal af þessum afmælis- börnum. Það er erfitt að komast að þeim og fá þau til að leysa frá skjóðunni, eins og sagt er. Hin daglegu störf eru þeirra lif, þeirra áhugaefni og þó að þeim þyki öllum vænt um Sjómanninn, þá vilja þeir helsl ekki lála liafa neitt eftir sér. JÓN ÓLAFSSON er aldursforseti þessara fjögurra stráka. Þegar eg hitti hann, horfir hann rétt sem snöggvast á mig „til að sjá mig út“. Eg sé, að hérna er maður sem liugsar margt og veit sitl af hverju. Ósjálfrátt berst talið strax að þjóðfélagsmálum, ekki þó pólitík beinlinis, að minsta kosti ekki flokkspólitík, og það er eins og þarna hafi verið komið að hugðarefni |æssa sex- tuga stýrimanns. „Það er ofþensla á ölluni sviðum, öfugstreymi, sem hlýtur að leiða til hörmunga, borgirnar yfir- ^yggjast, gróðurinn hverfur, steinlögð stræti og einn maður getur gert?“ Nei, sagði maðurinn. „Það er að vera ekki fyrir.“ Mér fyndist að sjómenn ættu að alhuga þetta mál vel og beita sér fyrir að það kæmist til fram- kvæmda. Fyrir tveimur árum var haldið námskeið á Akranesi og var aðsókn meiri en liægt var að iaka á móti. Og er það ekkert vafamál; að það hefir Verið til stórbóta. A verslunarskipum tekur það mörg ár að vinna sig upp í hásetastöðu. Og væri þá ekki til mikils hiælst að hafa 3—4 mánaða námskeið fyrir sjó- hienn á fiskiskipunum. Magnús Scheving. skýjaklúfar útrýma gróskunni, náttúran víkur fyrir vélaiðju og kaupliallarbraski.“ — Er vélaiðjan þá til bölvunar fyr- ir mannkynið? „Hún þyrfti ekki að vera það, bless- aður vertu. En það er lífsspursmál að halda fullu sam- ræmi í samfélagi mannanna.“ — Og svo förum við að tala um striðið. — Jón Ólafsson hefir sín- ar ákveðnu hug- myndir um J)að. „Það er liægt að selja hcr á land í Englandi og sigra Englend- inga heima fyrir, J)að er hægt með einni einustu aðferð og það er aðeins ein þjóð i heiminum sem getur J)að, Þjóðverjar." — Og hvaða aðferð er það? „Skriðdrekarnir sjálfir yfir sundið í þúsunda- tali“, en svo vill Jón eltki tala meira um J)etta efni. Jón Ólafsson er fæddur að Skálpadal við Pat- reksfjörð 25. apríl 1880. Hann fór strax, þegar hann var 8 ára gamall að fylgja föður sínum á sjó, en föður sinn misti hann J)egar hann var 15 ára. Jón vann baki brotnu stanslaust og óslitið á sjón- um. Um aldamótin tók hann próf frá Sjómanna- skólanum og fram til 1910 var hann skipstjóri á Júlskipum. Það ár l'ór hann til Kaupmannahafnar og árið 1912 tók liann próf frá stýrimannaskóla J)ar. Frá Kaupmannahöfn fór Jón lil Ameríku. Þar vann hann ýms störf, aðallega í Winnipeg, en 1916 misti hann atvinnuna og fór J)á heim. Þá Jægar fékk hann stöðu á Gullfossi. Siðar sigldi hann á skipum Landsverslunarinnar, en þegar hún var lögð niður fór liann aftur á skip Eintskipafélagsins og á J)eim hefir hann starfað siðan. Jón Ólafsson er bersýnilega mikill J)rekmaður, rólyndur, fastur fyrir og lætur ekkert koma sér að óvörum. Sjómaðurinn hafði heyrt að hann fengist við uppfynningar.

x

Sjómaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.