Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 32

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 32
26 SJÓMAÐURINN Þcgar »Force« fórst. Á fjárflutiiiiigaskiiuí með Zollner f járkanpmanni. Eftir^Guðjón M. Jónsson. U RÁ uppvaxtarárum mínum er mér minnis- stæðast þegar stóru frönsku fiskiskipin, skon- orturnar frá Dunkerque og Bordeoux og fleiri stöð- um á Frakklandi, komu suðaustan úr hafi, venju- lega í febrúar. Sá eg þau greinilegast, er þau komu vestur fyrir Reynisdranga, sem eru veslur af Vík, en þar i sveit ólst eg upp. Þegar eg liafði aldur til að fara á sjó látti eg þess kost nokkrum sinnum að koma um borð i þessi frönsku skip og voru viðskifti þá vanalega sjóvetl- ingar og treflar, en við fengum í staðinn hveiti- kökur (,,Pompola“-kex), færi, öngla og sökkur. Ávalt voru hinir frönsku sjómenn ástúðlegir og kátir. Svo lengi sem eg man voru tekin sendibréf af þeim í land, er síðan voru send landleiðina til Reykjavíkur til ástvina þeirra í Frakklandi. Eftir að sjómennirnir höfðu lagt út á veiðar komu þeir ekki aftur til liafnar hér við land fyr en um páska og jafnvel siðar. Þegar við liöfðum tekið við sendihréfum af þeim fyltu þeir treyjur okkar af kexi og fleira góðgæti. En við kvöddum þá með virðingu. Þessi kynni af hinum frönsku sjómönnum vöktu löngun okkar unglingnna til að mega vera með i svona ferðum. Og þegar skipin hurfu vestur fyrir Dyrliólaey urð- um við hryggir i liuga, en vongóðir að úr mundi rætast er við stækkuðum. Hér við land var í nokkur ár norslcl flutninga- skip „Force“, sem Louis Zöllner stórkaupmaður hafði i ferðum til vöruflutninga viðsvegar kring- um land og til að flytja lifandi fé og liross til Belg- iu og Englands. Yorið 1912 kom „Force“ til Yikur með vörur til Halldórs Jónssonar kaupmanns og voru nokkrir menn sendir um borð til að setja vör- urnar í stroffur og koma þeim niður í uppskipun- arbátana. Var eg einn þar á meðal. Vegna brims mun það hafa tekið 3 daga að koma vörunum í land. En brim er, eins og kunnugt er, oft við sand- inn. Þegar losun var lokið gaf skipstjóri sig á tal við mig og bauð mér pláss á skipinu. En eg gat þá ekki farið þó að mig langaði til og samdist svo með okkur að eg kæmi i ágúst til Seyðisfjarðar og tæki skipið þar. Svo fór skipið leiðar sinnar og flutti vörur frá Englandi á ýmsar hafnir fyrir kaupfélögin, en tók liross til Newcastle on Tyne. Þá var e.s. IJólar í strandferðum frá Sameinaða félaginu i Kaup- mannahöfn og fór eg með lionum frá Vik í ágústferðinni til Seyðisfjarð- ar. Þegar þang- að kom var skipið ekkikom- ið, en þá var fjörugt aivinnu- líf á Seyðisfirði og komst eg strax í vinnu lil Stefáns Th. Jónssonar kaup- manns. En her- bergi fékk eg með Krístmundi Gíslasyni frá Stokkseyri, nú rafvirkjameistara í Reykjavík og reyndist liann mér ágætur drengur. Hálfan mánuð beið eg þar til skipið kom. Hitti eg þá strax skip- sljóra og stóð all við það sem umtaiað var. Réðist eg um borð sem óvaningur og var mánaðarkaupið 35 kr. Á skipinu voru er eg kom um horð 4 íslensk- ir hásetar Þórarinn Þorsteinsson fná Hánefsstöð- um viðSeyðisfjörð,nú útvegshóndi,JónGuðmunds- son frá Hlíð, við Hafnarfjörð, Brynjólfur Stefáns- son frá Selalæk á Rangárvöllum, drukknaði i Faxa- bugt af bát héðan úr Reykjavík og Theodór Frið- riksson frá Sauðárkróki, nú rithöfundur í Reykja- vík. Ætlaði Tlieodór af er skipið kæmi til Sauðár- króks, og söknuðu allir lians á skipinu, því allt vissi Theodór, og margar voru sögurnar sem hanfl

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.