Sjómaðurinn - 01.06.1940, Side 44

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Side 44
38 SJÓMAÐURINN Viðauki við namning; frá 7. október 1939 milli Sjómannafélags Reykja- víkur, Vélstjórafélags Islands, Stýrimannafé- lags íslands, Félags íslenzkra loftskeytamanna og Matsveina- og veitingaþjónafélags Islands ann- arsvegar og Eimskipafélags íslands h.f., Skipaúl- gerðar ríkisins, Eimskipafélags Reykjavikur h.f., Útgerðarfélags KEA h.f., Eimskipafélagsins ísa- fold h.f. og Kveldúlfs h.f. hinsvegar: 1. gr. — Fyrir siglingar á svæðinu milli 63 og 45 gr. N.hr. og austan 20 gr. V.l. greiðist viðhót- aráhættuþóknun kr. 4.00 pr. sólarliring hverjum skipverja, sem samningur þessi nær til. Þessi aukaþóknun greiðist frá byrjun þess dægurs, er skipið lcemur inn á áhættusvæðið og til loka þess dægurs er skipið kemur til hafnar (miðað við kl. 12 eða 24). Á sama liátt reiknast aukaáhættu- þóknun þessi frá byrjun þess dægurs er skip fér úr höfn á þessu áhættusvæði og til loka þess dáeg- urs, er það fer út af því. Fyrir þann tíma, sem skip liggur í höfn gi-eiðist ofanrituð aukaþóknun ekki. 2. gr. — Á svæðinu niilli 8 og 30 gr. A.l. og milli 65 og 72 gr. N.br. greiðist sama áhættuþókn-. un og í Ameríkuferðum. Ef skip liggur í norskri höfn greiðist þó sama áhættuþóknun og í öðrum höfnum ófriðaraðila. 3. gr. — Samningurinngildir til næstu áramóta, þó þannig, að ef veruleg breyting miðað við und- anfarna mánuði ærður á áhættunni, að áliti nefndar, sem aðilar koma sér saman um, þá hef- ir hvor aðili fyrir sig rétt til þess að krefjast end- urskoðunar á samningum og náist ekki samkomu- lag innan 14 daga, þá að þeim fresti liðnum, að segja honum, upp með 14 daga fyrirvara, að þvi er snertir þau svið, þar sem nefndin telur að veru- leg breyting hafi orðið. Ef hvorugur aðili hefir sagt upp samningi þessum fyrir 15. des. næst- komandi, heldur hann áfram að gilda þar til hon- um er sagt' upp með 14 daga fyrirvara. 4. gr. — Ákvæði samnings þessa skulu gilda frá og með 21. apríl s.l. Að öðru leyti en hér er fram tekið, framlengist samningurinn frá 7. okt. 1939 óbreyttur. Reykjavik, 7. maí 1940. (Undirskriftir.) Sextugsafmæli. Magnús Sig- urðsson, banka- stj. Landsbank- ans, varð sextug- ur 14. júní s.l. Magnús Sigurðs- son hefir alla tíð komið mjög við sögu Slysavarna- félagsins alt frá stofnun þess, og ynt af hendi mikið og gott starf í stjórn fé- lagsins. 1 Fiski- félaginu hefir liann og verið mjög starfandi og yfirleitt veitt málefnum sjó- manna inikinn og öruggan stuðning. Ilafa vafa- vafalaust fleiri óskað honum hamingju, en til bans náðu á afmælisdaginn. Ýmiskonar fróðleikur Robert Fulton var byggingameistari fyrsta eim- skipsins. Það fór sína fyrslu ferð, eftir Hudson- fljótinu í Bandaríkjúnum árið 1807. Árið 1819 sigldi eimskip fyrsta sinni yfir At- lantshafið frá New York til Liverpool. Hinn 12. júni 1830 bljóp fyrsta danska eimskipið af stokk- unum í Kaupmannaliöfn. Það er sagt að áttavilinn hafi verið fundinn upp árið 2630 f. Krist af kínverskum keisara er hét Hoang-ti. Árið 1302 e. Kr. fann Evrópumaðurinn Gisja upp áttavitann að nýju. Loftvogin er talin að vera fundin upp árið 1643 af ítölskum stærðfræðingi er Torricelli liét. Franskur maður að nafni Papin er sagður hafa fyrstur manna búið til gufuvél. Það var árið 1688. Hann dó úr hungri. Fyrsta nothæfa sjóúrið var fundið upp árið 1761 af enskum manni, John Hárrison að nafni. Það meðal annars gjörði sjófarendum mögulegt að ákveða stað skipsins.

x

Sjómaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.