Sjómaðurinn - 01.06.1940, Side 45
SJÓMAÐURINN
39
Sóiin ogr imigiiiJ.
Þvermál sólarinnar er 1.390.600 kílómetrar.
Meðalfjarlægð sólar frá jörðu er 149 miljónir
kilómetrar.
Yfirborð sólarinnar er 6.987 miljarðar ferkíló-
metra.
Sólin snýst í kringum sjálfa sig einu sinni á
hverjum 25,8 sólarhringum.
Ljósmagn sólarinnar er 600 þúsund sinnum
meira en fulls tungls og 7 billjón sinnum meira
en skærustu stjörnu.
Innra hitamagn sólarinnar er talið samsvara
20—40 miljónum gráða.
Efni sólarinnar er járn, kopar, zink, natrium,
kalcium, brint og önnur grunnefni.
Sólarljósið er 8 mínútur að fara til jarðarinnar.
Bifreið, sem fer 60 lan. á klukkustund, myndi
með jöfnum liraða komast til sólarinnar á 280
árum.
Stærð tunglsins er %0 af stærð jarðarinnar.
Þyngd tunglsins er y81 af þyngd jarðarinnar.
Þvermál tunglsins er 3,476 km.
Meðall'jarlægð lunglsins frá jörðunni er 384,400
kílómetrar.
Tunglið fer einu sinni kringum jörðina á liverj-
um 27 dögum, 7 tímum og 43 mínútum.
Ivuldastig tunglsins er á skuggahliðinni 150
gráður.
Hitastig tunglsins, sólarmegin, er alt að 100
gráður.
Hæslu fjöll á tunglinu eru 8 þúsund metrar.
Stærsti gígur á tunglinu er 185 km. í þvermál.
(Stærsti gígur á jörðunni er 18 km. í þvermál).
Á tunglinu er ekkert loft og ekkert vatn.
Prá Eimskipafélagi Islands.
Hinn 8. þ. m. hélt félagið aðalfund sinn. Af reikn-
ingum er upplýst að brúttótekjur félagsins hafa
orðið að viðhættri yfirfærslu frá fyrra ári, er nam
að eins 10.785.96. Alls krónur 6 miljónir 478 þús-
Und 493.44. En nettótekjur má telja að liafi orðið
i miljón 331 þús. 495 krónur og 1 eyrir. Er það
úhtleg l'úlga eða sem svarar rúmar 220.000 kr. á
hvert skip til jafnaðar.
Eignir félagsins Umfram skuldir eru taldar 1
uiiljón 394 þús. 297 krónur og 74 aurar, en þá ber
þess að gæta, að skipin eru talin eignamegin langt
fyrir neðan sannvirði, svo að raunverulegar eignir
eru íniklu meiri eins og sjá má af eftirfarandi:
Bókað eignarverð skipanna með áhöldum og
varahlutum:
Gullfoss ........................ kr. 5.000.00
Goðafoss .......................... — 5.000.00
Brúarfoss ......................... — 100.000.00
Dettioss .......................... — 300.000.00
Lagarfoss.......................... — 5.000.00
Selfoss ........................... — 5.000.00
Öll sex skipin .... Alls kr. 420.000.00
eða tæplega verð eins þeirra. — Eftirlaunasjóður
er orðinn 777.100.29 og laðgar í hann á þessu ári
kr. 90.000.00 samkvæmt samþykt aðalfundar og
má það heila liin mesta rausn. Framkvæmdastjóra
Guðmundi Yilhjálmssyni var á aðalfundi þökkuð
10 ára forstjórn. Stjórn lelagsins hér heima skipa
sömu menn og áður.
Árið 1812 fann Austurríkismaðurinn Ressel upp
skipsskrúfuna. 1829 bygði hann fyrsta skipið með
skrúfu. Áður voru notuð hjól. Síðar komu þeir
Svíinn Jolin Ericsen og Englendingurinn F. B.
Smith og fullkomnuðu þessa uppfyndningu.
Dieselvélin var fundin upp árið 1897 af Þjóð-
verjanum Rudolf Diesel.
Kaupir
allar teg-
undir af I ý s i,
hrogn og tóm-
ar tunnur. —
Bernh. Petersen
Reykjavik. — Sími 1570
Símnefni: Bernhardo.