Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 48
SJÓMAÐURINN
Askorun
frá Fiskifélagi Islands til fiskimanna og vélbátaeigenda.
Vegna ástands þess, sem skapast liefir á Norðurlöndum, er nú al-
gerlega ókleift orðið að afla nanðsynlegra varalilnta i mótorvélar þær,
sem eru frá þessum löndum og notaðar eru í íslenzkum fiskibátum, en
áður var loku fyrir það skotið, að varahlutar fengjust liingað i þýzkar vélar.
Hvílik liætta bátaflotanum getur stafað af þessu ástandi, sézt bezt
á því, að af hverju liundraði mótorvéla i fiskibátum hér á landi, eru að
tölu til 90 frá Norðurlöndum og Þýzkalandi, en 95 af 100 livað hestafla-
tölu snertir, þar eð nær eingöngu smæstu bátarnir bafa vélar smiðaðar
í Bandaríkjunum og Englandi.
Styrjöldin hefir ennfremur gert allan aðdrátt á eldsneyli til mótor-
véla mjög erfiðan og orsakað hæklcandi verðlag á því, og er þó óliætt að
gera ráð fyrir enn meiri hækkun, ef styrjöldin verður langvinn.
Vélbátaeigendur og þeir, sem með mótorvélar fara, verða svo sem
þeim er unt, að koma í veg fyrir að þetta verði til verulegs tjóns fyrir
bátaútveginn, og skorar Fiskifélag íslands því á þá:
1) að keyra vélarnar gætilega og hindra þannig óeðlilegt vélaslil;
2) að hirða vélarnar svo vel, sem frekast er unt;
3) að spara eldsneytið svo sem hægt er.
Mun félagið góðfúslega veita mönnum allar upplýsingar, er að þessu
lúta og þá aðstoð, sem það getur i té látið og að gagni má koma.
Fiskifélag íslands.
Oeri§t á§krifendnr að
Sjómannastéttin veit
að
Alafoss-fötin
eru bezt.
^ZJerjlunín
At
Fjölbreyttasta bvgginga- og
verkfæraverzlun landsins. —
— Símar 4160 og 4128. —