Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Side 5
Eknaton, egypzkur fornkonungur, sá er
byggði borgir og hallir í El-Amarna.
2. erindi V. G. Þ. um fornminja-
rannsóknir í Afríku verður flutt
sunnud. 5. maí. — í þessu erindi
segir hann frá ýmsum nýjustu rann-
sóknum í Egyptalandi og löndunum
þar fyrir sunnan allt til Kaplands.
Musteri Hatchepsuts drottningar í Der-
el-Bari, sem á seinni árum hafa verið
grafin úr jörðu. Hallir þessar eru taldar
með fegurstu bygging-um fornaldarinnar.
Þær stafa frá eldri tímum en hinar forn-
fræg'u, grísku hallir, og telja sumir nú orð-
ið, að gríski byggingastillinn muni hafa
orðið fyrir áhrifum frá þessari foimu bygg-
ingalist Egypta.
Fornminjarannsóknir
Rannsóknirnar í Egyptalandi hafa
nú staðið yfir um hálfrar aldar skeið
og er þeim haldið áfram enn í dag.
Sífellt hafa verið að finnast þar
merkar byggingar, grafir og ein-
stakir gripir. Af því, sem fundizt
hefur á seinustu árum, eru kunn-
astar grafir faraós Tutankhamens.
En margt annað hefur líka fundizt,
sem ekki er síður athyglisvert.
Mætti þar til nefna hallir og borgar-
rústir frá tímum faraós Eknatons,
en hann reisti borg og hallir í El-
Amarna og undir hans stjórn blómg-
aðist ný list og nýtt trúarlíf, sem
síðar fór forgörðum fyrir egypzku
prestaveldi.
Fyrir nokkrum árum hélt V. Þ.
G. erindaflokk um svipað efni — og
voru þau þá mjög vinsæl af hlust-
endum. Þessi erindi hans nú eru að
vissu leyti framhald af hinum fyrri,
því að hinar nýju rannsóknir hafa
varpað nýju ljósi yfir ýmislegt í
þessu sambandi.
Gömul egypzk standmynd. Hún á að sýna
sltáldið frammi fyrir lista- og bókmennta-
goðinu Þot (sbr. erindið).
ÚTVARPSTÍÐINDI
433