Útvarpstíðindi - 21.10.1940, Síða 14
Takið undir
— segir Páll Isólfsson.
— Ég hef frétt, að fram sé kom-
inn nýr dagskrárliður, sem þér
munuð sjá um.
— Já, rétt ,er það, segir Páll.
— Takið undir, takið undir! er nú
mitt einkunnarorð. Með þessum
dagskrárlið á að framkvæma hug-
myndina, sem við settum fram í
títvarpstíðindum í vor. 1 fyrstu
mun ég þó lítið hefjast handa með
að kenna ný lög, en láta sitja fyrir
að fara yfir gömul og góðkunn
sönglög, sem allir þekkja. Ég held
að það sé líklegia til að laða menn
til þátttöku svona í byrjun. Ég mun
því nú fyrst taka nokkur góðkunn
lög eftir Sigfús Einarsson, m. a. af
því, að þau eru til á nótum á mörg-
um heimilum. Ég mun stuttlega
greina frá lögunum í byrjun, eðli
þeirra og gerð og e. t. v. eitthvað
frá höfundi þeirra, — en aðaltil-
gangurinn með þessum söngtímum
er að fá fólkið til að syngja með. —
1 útvarpinu mun ég hafa lítinn söng-
flokk, sem ætlazt er til að leiði söng-
inn. Mest verður sungið .einraddað,
enda er allur alþýðlegur söngur
FRÁ VÍN TIL VERSALA. Framh. af bls. 7.
blóði. Það verður ekki annað sagt en að
hann hafi staðið við orð sín, því að í
þremur styrjöldum sameinaði hann hin
sundruðu smáríki Þýzkalands og skapaði
þýzkt keisaradæmi. Verk hans bar mark
meistarans. Hið nýja þýzka keisararíki
varð prússneskt Þýzkaland, herskátt og
ruddalegt, og með öllu öðru sniði en marg-
ir beztu stjórnmálamenn þess höfðu von-
að. En hvað sem því líður, þá var Þýzka-
land Bismarcks afdrifaríkasta staðreynd í
19. aldar sögu Evrópu og hefir meira en
flest annað markað sögu álfunnar allt fram
á þennan dag.
eðlilegastur og fer bezt þannig.
Margraddaður söngur er aftur list-
búningur, sem krefst mikillar æf-
ingar og nákvæmni.
í fyrsta tímanum verða t. d. sung-
in þessi lög:
Ég vil elska mitt land — Fanna
skauta — Hlíðin mín fríða — Hvað
er svo glatt — f birkilaut — Nú er
frost á Fróni — Nú tjaldar foldin
fríða — o. s. frv.
Ætlazt er til, að fólk alm,ennt á
heimilum og jafnvel í skólum fylg-
ist sem bezt með þessum tímum og
syngi með, hver eftir sinni getu. —
Ef framhald verður á þessum söng-
tímum mun verða reynt að kenna
ný lög og mun þá koma sér sérlega
vel að hægt v.erði að birta bæði ljóð
og lag í Útvarpstíðindum — helzt
fyrirfram. Svíar eru nú í þann veg-
inn að byrja á þessu sama, og sé ég,
að þeir hafa þegar birt nokkur lög
á nótum (einrödduð) í þessu sam-
bandi.
— Verður svo ekki eitthvað reynt
að gera almenningi hina æðri tón-
list aðgengilega?
— Aðgengileg er hún að vísu
flestum þeim, sem endast til þess að
hlusta í rólegheitum og í einlægni
— en það getur flýtt fyrir skilningn-
um og aukið hann, að menn læri að
þekkja formin og uppbyggingu
verkanna, því að öll slík verk eru
byggð upp eftir ströngum lögmál-
um, enda eru þessi lögmál tónfræð-
innar talin einhver hin fullkomn-
ustu og nákvæmustu listræn form,
sem til eru.
— Hvaða verk verður fyrst val-
ið til athugunar?
— Það verður Ófullgerða hljóm-
kviðan eftir Schubert — eitt hið
mesta meistaraverk, en þó jafn-
framt fremur auðskilið öllum al-
menningi.
14
ÚTVARPSTÍÐINDI