Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 7

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 7
ÚTVARPSTÍÐINDI 271 =iiiiiiiimimiiimiiimimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii= Tómas Guðmundsson: ^4varp 44fa onunnar 17 j-am 1947 Flutt af frú Öldu Möller leikkonu af svölum Alþingishússins. Ég heilsa þér, mín þjóð. — I kveðju mína á þessum degi leggur blessun sína hver kynslóð, sem í gröf og gleymsku hvarf, en gaf oss móðurjörð og tungu í arf. Þar mætast þeir, sem ofurefli vörðust, og allir þeir, sem fyrir okkur börðust. Hve gott að mega slíkum þakka það, að þjóð mín, land og saga fylgdist að. Enn hrynja vítt mín höf og fjöll mín blána og himinblærinn lyftir ungunt fána, sem á að fylgja unt aldir þeirri þjóð, er þráir stærri afrek, fegri Ijóð, sem landi sínu vinnur ævi alla og öllunt stundunt heyrir land sitt kalla, sem ást á frelsi og ættjörð knýr hvern dag að einu ntarki, unt vilja og bræðralag. Svo kveð ég yður kveðju árs og friðar. Mitt konungsríki ég legg í hendur yðar, þér tryggu þegnar! Meðal yðar enn skal ísland finna sína beztu menn. Og meðan ljósið lyftir ungu blónti og líf og æska syngur einunt rómi og vors ntíns birta úr ungunt augunt skín, við eigunt santleið, ég og þjóðin ntín. T. G. =imiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin=

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.