Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 10
274
ÚTVARPSTÍÐINDI
Raddir kunnra manna — Lýsingar merkra
atburða — Geymist til framtíðarinnar
IMý deild við Þjóðminjasafnið
UNDIRBÚNINGUR er hafinn að
því, að kynslóðir framtíðai’innar geti
hlustað á foi’vígismenn þjóðarinnar
á liðnum öldum og kynnzt sögu þjóð-
ar sinnar með lýsingum samtíðar-
manna gegnum útvarp. — Jónas Þor-
bergsson útvarpsstjóri hefur þennan
undirbúning með höndum, og hefur
hann í viðtali við Útvarpstíðindi
skýrt nokkuð frá starfi sínu. Hann
sagði meðal annars:
„Á siðastliðnum vetri komu til
viðtals við mig fulltrúi í Stjórnar-
ráðinu Birgir Thorlacius og Matthías
Þórðarson fornminjavörður. Skýrðu
þeir mér frá því, að ríkisstjórnin og
þjóðminjasafnið hefðu hug á að
koma upp í hinu nýja safnhúsi deild
með grammófónplötum, sem á væru
raddir merkra manna, lýsingar á
merkum atburðum í sögu þjóðarinn-
ar o. s. frv. Ráðuneytið fór þess á
leit við mig, að ég rannsakaði mögu-
leika fyrir því að koma upp slíku
safni í samstarfi við Ríkisútvarpið
og með aðstoð erlendra grammófón-
félaga. Var mér og falið, að reyna
að ná sem hagkvæmustum samning-
um við erlend félög um þjónustu
þeirra í þessu sambandi.
Þegar ég fór utan til að sitja út-
varpsráðstefnu Norðurlanda í vor,
notaði ég tækifærið og fór til Eng-
lands til að kynna mér aðstæður þar.
Síðan dvaldi ég nokkuð í Svíþjóð og
kynnti mér möguleika Svía. í Eng-
landi lagði ég málið fyrir stóra
grammófónsamsteypu ,sem þar starf-
ar, E.M.I. — Elictrical and Musical
Industris — og leitaði tilboða hjá
því. í Svíþjóð leitaði ég til grammó-
fónupptökudeildar Radiotjánst, en
Svíar eru komnir mjög langt í þess-
ari grein. Mér hafa enn ekki borizt
svör, áætlanir eða tilboð frá Eng-
landi. Þangað sendi ég nýuppteknar
plötur héðan. Voru þær af beztu
gerð, en við erum fyrir nokkru búnir
að fá fullkomin upptökutæki amerísk,
sem kallast Presto, og eru talin hin
beztu. — Var gert ráð fyrir, að
Englendingar gerðu tilraunir til end-
urupptöku af lakkplötum okkar á
plötur, sem búnar eru til úr efni, sem
eyðist ekki og verður sem nýtt um
margar aldir, en það skal tekið fram
til skýringar, að lakkplöturnar end-
ast lítið og verða ónýtar eftir tiltölu-
lega fá ár.
Ég tók með mér til Svíþjóðar
nokkrar plötur héðan, sem voru með
efni, sem Ríkisútvarpinu þykir miklu
máli skipta að ekki glatist. Kom ég
með sýnishorn af enduruppteknum
plötum frá Svíum, og hefur þetta
tekizt svo vel, að allir, sem hafa átt
kost á að hlusta á þær og gera sam-
anburð, hafa undrazt það.
Til þess að lesendur skilji þetta
mál betur er rétt að skýra nánar frá
því hvernig þetta er gert. — Við eig-