Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 6

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 6
270 ÚTV ARPSTÍ ÐINDI langt úr alfaraleið og ekki þýðir að bjóða þessum ágætu þjóðum að hlusta á íslenzku. Hins vegar vil ég taka það fram, að íslenzka útvarpið hefur notið mikillar vinsemdar út- varpsmanna á Norðurlöndum, og við höfum byggt okkar útvarp upp frá fyrstu tíð með hliðsjón af reynslu frændþjóða okkar, þó að við þurf- um að sjálfsögðu í meginatriðum að sníða okkur stakk eftir okkar eigin vexti. Helzt mun vera hægt að koma á samvinnu í hljómlist, og hún mun verða tekin upp eftir því sem föng eru á. Á sú samvinna þá fyrst og fremst að ná til þjóðlegrar tónlistar. Helztu dagskrármál ráðstefnunnar voru þessi: Opnun ráðstefnunnar, Norrænar útvarpsráðstefnur og þýð- ing þeirra, Sendingatími samnor- rænna dagskráa, Alþjóðlegar útsend- ingar, Æskulýðs- og barnatímarnir, Sér-útsendingar og almennar útsend- ingar, Sambandið við útvarpshlust- endur, Útvarpið og blöðin, Val út- varpsstarfsmanna og þjálfun þeirra, Útvarpið og fréttaþjónustan. Auk þessa voru svo ýms mál, sem tekin voru til umræðu. Urðu allmiklar um- ræður á ráðstefnunni, og ýmislegt kom fram, sem var lærdómsríkt. — Ályktanir voru gerðar í mörgum mál- um, en þar sem þær hafa ekki að verulegu leyti þýðingu fyrir okkur, held ég að ónauðsynlegt sá að fara nánar út í það“. Alla dagana, sem ráðstefnan stóð, nutum við gestrisni Finna í ríkum mæli. Var furðulegt, hve vel var að okkur búið, þegar tekið er tillit til þeirra erfiðleika, sem Finnar eiga við að stríða, eins og flestar þjóðir í Evrópu, en ástæður eru þó langsam- lega erfiðastar þar, þegar miðað er við Norðurlandaþjóðirnar“. — Fréttir af útvarpsstarfsemi á Norðurlöndum ? „Þær eru fáar. Sú er víst merkust, að Svíar hafa nú uppi áætlanir um stórkostlegar breytingar. Þeir und- irbúa að flytja tvennar eða þrennar dagskrár á sama tíma. Er gert ráð fyrir, að þetta kosti um 200 miljón- ir króna. Þá hafa þeir og í hyggju, að koma sér upp voldugri útvarps- höll. Hafa þeir teikningar af henni og umhverfi hennar fullbúnar, og er gert ráð fyrir, að hún kosti uppkom- in um 24 miljónir króna, eða um 45 miljónir íslenzkar. Það, sem mér fannst athyglisverð- ast að heyra í samræðum við starfs- bræður mína frá Norðurlöndum var, að svo virðist sem útvarpið sé hálf- gerð hornreka hjá nágrannaþjóðum okkar. Afnotagjaldið í Svíþjóð er 10 krónur á ári, það samsvarar 18 ís- lenzkum krónum. Forstjórar útvarps- ins fóru fram á það við sænska þing- ið, að því væri leyft að hækka afnota- gjöldin upp í 15 krónur, en fekk því ekki framgengt. Þá lagði ríkissjóður- inn sænski ekki fram nema 500 þús- und krónur í byggingarsjóðinn. — Sænsku útvarpsmennirnir kvörtuðu mjög undan skilningsleysi hins opin- bera á þörfum og vaxtarmætti út- varpsins. Sama sögðu Danirnir. Af- notagjöldin í Danmörku eru líka 10 krónur. Þeir vildu einnig hækka upp í 15 krónur, en þingið neitaði. Þó var miljónarkróna halli á rekstri danska útvarpsins á síðasta ári. — Sænska útvarpið er hlutafélag. — Afnota- gjaldið í Noregi er 20 krónur. — Ég gat hælt okkur íslendingum af því, að hér væri. óháð og frjálst útvarp, enda verð ég að segja það, að við hér

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.