Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 5
ÚTVARPSTÍÐINDI
269
Utvarpsráðstefna Norðurlanda
Viðtal við Jónas Þorbergsson, útvarpsstjóra
ÚTVARPSRÁÐSTEFNA Norður-
landa var haldin í Helsingfors í Finn-
landi dagana 28.—31. maí síðastlið-
inn. Alls sóttu ráðstefnuna 33 full-
trúar frá Finnlandi, 13 frá Dan-
mörku, 13 frá Svíþjóð og 2 frá ís-
landi. Allir helztu forystumenn út-
varpsstöðvanna á Norðurlöndum voru
á ráðstefnunni. Héðan mættu þeir
Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri og
Helgi Hjörvar skrifstofustjóri út-
varpsráðs. — Útvarpstíðindi sneru
sér nýlega til útvarpsstjóra og
spurðu hann um ráðstefnuna. Hann
sagði meðal annars.
„Útvarpsráðstefnur Norðurlanda
eru haldnar árlega. Útvarpsstöðvarn-
ar í Norðurlöndunum 4: Danmörku,
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eiga
mjög margt sameiginlegt, og hægur
vandi er að koma á mjög nánu sam-
starfi milli þeirra. Veldur því fyrst
og fremst skildar tungur, svo að nær
allir í þessum löndum geta skilið að
mestu leyti tungur hinna — og auk
þess, að löndin liggja mjög saman.
Samvinna er og náin milli þeirra. Út-
varpsstöðvarnar skiptast á mönnum,
leikflokkum, hljómlistarmönnum o.
s. frv. — Erfiðara er að koma á ná-
inni samvinnu milli okkar og þeirra,
og er ástæðan auðsæ, ísland liggur
Úlvarpsstjórar NorSurlandanna fjögurra: Olav Midtun, Noregi, Ingvi
Hugo, SviþjóS, Jónas Porbergsson, íslandi, og F. E. Jensen, Danmörku.