Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 12

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Blaðsíða 12
276 ÚTVARPSTtÐINDI Sigga gamla ÞAÐ VAR á sumarskemmtun ung- mennafélagsins, sem ég sá Siggu gömlu fyrst. Ég hafði komið í sveitina um vor- ið og dvaldi á prestssetrinu hjá móð- ursystur minni, prestsfrúnni, og manni hennar. Það átti að heita svo, að ég væri kaupamaður, en ekki var mér haldið strangt til vinnunnar. „Blessuðum drengnum veitir ekki af því að jafna sig eftir prófið“, sagði frænka mín. Ojæja. Gagnfræðaprófi hafði ég lokið um vorið, með sæmilegum ár- angri, miðað við framlagt erfiði. En þetta var á þeim góðu gömlu dögum, þegar gagnfræðingur var ofurlítið meira en sauðsvartur almúgi. Síðari hluta ágúst var skemmtun ungmennafélagsins haldin. Hún hófst með ræðuhöldum, íþrótt- um og öðru, sem slíkum skemmtun- um tilheyrir, en frómt frá sagt, hafði ég lítinn áhuga fyrir slíku á þeim árum. Það var fyrst þegar dansinn hófst, að mér fannst skemmtunin byrja. Það hafði verið fenginn héraðs- frægur harmónikuleikari, úr næstu sveit, og hann þandi hljóðfæri sitt af list og dugnaði eins og orðstý hans var samboðið. Dansinn dunaði, og ég sveif um gólfið með yngismeyjar sveitarinn- SMÁSAGA eftir Bjartmar Stein ar í fanginu, æskurjóðar og bros- mildar. „Dömufrí“, kallaði formaður fé- lagsins. Það varð svolítið hlé. Stúlk- urnar voru hikandi við að nota rétt sinn. Þær hvísluðust á, tvær og þrjár í hóp. Voru auðsjáanlega að eggja hver aðra að fara af stað, en eng- in virtist vilja taka að sér forustuna. Ég gaf mig á tal við Steina á Bakka á meðan. Hann var búfræð- ingur, hafði tekið próf um vorið. Við vorum orðnir nokkuð kunn- ugir, enda einu menntamennirnir í sveitinni, af hinum yngri mönnum. Ég gaf Dísu á Hóli auga í laumi. Mér fannst hún skrambi snotur stelpa, og var ekki vonlaus um að álit hennar á mér væri eitthvað í líkum anda. Þá var allt í einu komið við hand- legginn á mér. Ég leit við. Hjá mér stóð kvenmaður, auðsjáanlega komin all-langt yfir fegurstu ár æskunnar. En það virtist, sem hún hefði ekki sætt sig við þá ráðstöfun tímans. Hún var smávaxin, og bar enn meira á því, sökum þess, að hún var í kjól, sem náði ekki nema rúmlega að hné. Klæðnaður hennar hefði farið ungri stúlku prýðilega, en hjá henni gerði hann aðeins fingraför áranna enn ljósari. Hún hallaði til höfðinu, og leit á mig á ská undan hálfluktum

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.