Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Blaðsíða 13
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
5
mannafélagsins, og þar sem fyrirsjáan-
legt var að það myndi taka nokkurn
tíma áður hann lyki störfum og endan-
legar tillögur lægi fyrir frá hans hendi,
en dýrtíðin tók nú að sverfa að starfs-
mönnum í flestum launaflokkum, var
samþykkt á stjórnarfundi 12. ágúst
1937 að senda bæjarstjórn eftirfarandi
áskorun:
„Starfsmannafélag Reykjavíkur-
bæjar fer hér með fram á, að hátt-
virt bæjarstjórn Reykjavikurbæjar,
greiði öllum fastlaunuðum starfs-
mönnum bæjarins og stofnana
hans 10% uppbót á heildarlaun
(föst laun og dýrtíðaruppbót) fyrir
yfirstandandi ár, frá 1. jan. 1937
eða til vara 15% uppbót á heildar-
launin samkvæmt áður rituðu, frá
1. júlí 1937 að telja. Eins og hátt-
virtri bæjarstjórn er kunnugt um,
hefur dýrtíð farið ört vaxandi und-
anfarið, en flestir starfsmenn bæj-
arins enga uppbót fengið á launin,
en þorri annara vinnandi stétta er
þegar búinn að fá hækkuð laun sín.
Væntum vér þess fastlega, að hátt-
virt bæjarstjórn taki þetta mál hið
fyrsta til meðferðar og sjái sér fært
að verða við beiðninni."
Svar við þessari málaleitun fékk St.
R. aldrei, en kröfurnar um endurskoð-
un launasamþykktarinnar voru orðnar
svo háværar, að seint á haustinu, eða
18. nóv. 1937 kaus loks bæjarstjórn þrjá
menn í nefnd til þess að gera tillögur
um breytta launaskipan fyrir starfs-
menn bæjarins. Stjórn St. R. brá skjótt
við, kaus úr sínum flokki 3 menn og fór
fram á að þeir fengi aðstöðu til sam-
vinnu við launanefnd bæjarstjórnar. Á
bæjarstjórnarfundinum bar einn bæjar-
fulltrúa, hr. Ragnar Lárusson, sem
einnig var félagi í St. R., brigður á, að
stjórn félagsins hefði rétt til að tilnefna
nefnd án fundarsamþykkis, og varð
þetta atriði til þess, að launamálið var
sett á dagskrá á fjölmennum fundi í
St. R. 23. nóv. 1937. Nokkur hiti var í
fundarmönnum, þar sem þeim fannst
lítið ávinnast í launamálinu og linlega
haldið á kröfum á hendur bæjarstjórn-
inni. Hinsvegar þótti sýnt, að þar sem
bæjarstjórnarkosningarnar stóðu fyrir
dyrum og bæjarstjórn þegar búin að
kjósa nefnd í málið, myndi áherzla
verða lögð á að fá einhverja lausn sem
skjótast. Fyrir fundinum lágu tillögur
hr. Árna Björnssonar, voru þær síðar
fjölritaðar og sendar félagsmönnum
skv. fundarsamþykkt, svo óþarfi er að
gera þær að umræðuefni hér, en heild-
arniðurstöður sínar orðar hann svo:
1. Að meðallaun hjá ríkinu eru hærri
en meðallaun hjá bænum fyrir 7 starfs-
flokka af 9, þannig að meðallaun hjá
ríkinu liggja frá 5% til þvínær 70%
yfir meðallaun hjá bænum.
2. Að meðallaun hjá stærri einka-
stofnunum í Reykajvík eru hjá 4 starfs-
flokkum af 8 hærri en meðallaun hjá
bænum, og nemur mismunurinn frá 7
til 20%.
3. Að hæztu laun hjá ríkinu liggja
allsstaðar yfir hæstu launum hjá bæn-
um, þannig að hæstu laun hjá ríkinu
eru frá 18% og til 100% yfir hæstu
launum hjá bænum.
4. Að hæstu laun hjá stærri einka-
fyrirtækjum í Reykjavík liggja yfir
hæstu launum hjá bænum hjá 6 af 8
starfsflokkum, þannig að hæstu laun
hjá einkafyrirtækjum liggja frá 25%
til 92% yfir hæstu launum hjá bænum.