Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Blaðsíða 15

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Blaðsíða 15
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 7 „Fundur Starfsmannafélags Reykjavíkurbæjar 22. des. 1937 skorar á bæjarstjórn Reykjavíkur að ganga sem fyrst frá nýrri launa- skipun fyrir starfsmenn bæjarins í öllum starfsgreinum, sem feli í sér samræmingu starfslauna og hækk- un launa með tilliti til verðlags- breytinga og dýrtíðar á hverjum tíma, og veiti nú þegar nauðsyn- legt fé á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár, í samræmi við til- lögur launanefndar Starfsmanna- félagsins, enda gangi launabreyt- ingarnar í gildi frá 1. jan. 1938 að telja.“ Var áskorun þessi samþykkt með öll- um atkvæðum fundarmanna. Árangur þessarar áskorunar var sá, að launanefndir beggja aðila héldu einn fund sameiginlega. Með þeim fundi var fengin viðurkenning bæjarstjórnar á aðild Starfsmannafélagsins, ef hún var ekki áður fyrir hendi, en fundar- haldið leiddi ekki annað í ljós, en að gjörsamlega mátti vonlaust telja, að nokkur uppbót fengist vegna dýrtíðar á árinu 1937. Hinsvegar voru menn ásáttir um nauðsyn endurskoðunar launasamþykktarinnar frá 1919 og hef- ur bæjarstjórnarnefndin síðan verið endurkjörin eftir bæjarstjórnarkosning- arnar í janúar og hefur hún unnið að málinu, án þess þó að launanefnd St. R. hafi haft nokkurn aðgang að því að fylgjast með í því, hvað liði tillögum hennar, eða hvort þær væru nokkuð í samræmi við tillögur Starfsmannafé- lagsins, að öðru leyti en því, að form. launanefndar bæjarstjórnar hefur í við- tali við form. launanefndar St. R. lýst því yfir, að meirihluti nefndarinnar hafi gengið frá tillögum um launamálið, sem væri verið að ræða í bæjarstjórnarnefnd- inni og yrðu þær, eftir þær umræður og breytingar, er þar kynnu að koma fram, síðan lagðar fyrir sem umræðugrund- völlur í báðum nefndum. Hefir launa- nefnd St. R. tekið þann kost, að bíða aðgerða í þessu efni, þar sem nefndar- álit bæjarstjórnarnefndar muni gera málið auðunnara, sérstaklega þar sem frá hálfu launanefndar St.R. liggur fyr- ir skýrsla hagfræðings, sem áður getur. Vegna þess að launanefnd St. R. hélt því ákveðið fram, að nauðsynleg væri fjárveiting á fjárhagsáætlun bæjarins 1938, ef launabætur ættu að fást á því ári, en bæjarstjórn sá sér ekki fært að veita fé í þessu skyni á f járhagsáætlun- arfundi, þar sem áskorun St. R. lá fyr- ir, kom fram sú yfirlýsing frá einum af fulltrúum meirihluta bæjarstjórnar, hr. Bjarna Benediktssyni, að launa- hækkunin gæti náð fram að ganga, þó ekki væri fjárveiting fyrir henni sér- staklega. Þó þessi yfirlýsing væri engin fullnægjandi trygging fyrir viðunandi launahækkunum vegna dýrtíðar, leit launanefnd St. R. svo á, að ekki yrði aðhafst meira í bili, fyrr en tillögur launanefndar bæjarstjórnar lægju fyrir. En þar sem það hefir sífellt dregizt á langinn, að þær kæmu fram, og engir sameiginlegir fundir launanefnda hafa verið heldnir, hefur óþolinmæði manna vaxið og til að herða á aðgjörðum, voru kosnir varamenn í launanefnd St. R., þeir hr. Magnús V. Jóhannesson og hr. Sverrir Samúelsson, á fundi félagsins 20. marz s. l.Þrátt fyrir þá lofsverðu ráðstöfun, hefur hvorki gengið né rek- ið, og það er sannast að segja, að blað það, sem nú sér dagsins ljós, á tilveru sína nokkuð að þakka seinagangi launa-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.