Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Síða 14

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Síða 14
6 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR 5. Að frá 1. apríl 1931 hafa starfs- menn bæjarfélags Kaupmannahafnar fengið dýrtíðaruppbót hækkaða um 54 kr. og verðlagsuppbót um 10% (14 1934), þar að auki hafa þeir við end- urskoðun á launasamþykktinni fengið töluverða launahækkun aukalega frá 1. júlí þ. á. 6. Að laun í Bergen hjá starfsmönn- um bæjarfélagsins voru í okt. 1936 hækkuð um 5% af grunnlaunum, og stóðu samningar yfir um nýja launa- hækkun í júní síðastliðinn. 7. Að laun hjá starfsmönnum bæjar- félagsins í Olsó hækkuðu um 5% árið 1935—36 og frá 1. júlí þ. á. um 160,00 kr. árlega. 8. Að verðlag á nauðsynjum til heim- ilisþarfa er 40—55% hærra í Reykjavík en í Danmörku og Noregi. Launin hér í Rvík reiknuð í ísl. kr. þurfa því að vera 40% hærri að krónutali en laun í Kaupmannahöfn reiknuð í d. kr. og 55% hærri en laun í Noregi reiknuð í n.kr., til þess að jafnast á við raunveruleg laun á þessum stöðum. Þetta gildir að öllu leyti um öli laun hér í Rvík, sem ekki fara fram úr ca. 5000 kr. á ári, og einnig að miklu leyti um hærri laun. 9. Að því fer fjarri að laun starfs- manna bæjarfélagsins hér jafnist á við raunveruleg laun hjá Kaupmannahafn- ar, Oslóar og Bergens bæjarfélögum. Lægstu launaflokkar í Reykjavík eru heldur lægri en sambærilegir flokkar á launastigum áður nefndra bæjarfélaga, en þyrftu að vera frá 40 til 55% hærri, til þess að jafnast á við raunveruleg laun þessara bæjarfélaga. Við þetta bætist að vísitala fyrir verðlag á heimilisnauðsynjum í Reykja- vík hækkaði úr 232 stigum í 242 stig frá 1. okt. 1935 til 1. okt. 1936, en síð- an hefur vísitala fyrir verðlag á mat- vöru hækkað úr 184 stigum upp í 209 stig í byrjun ágúst, og má því vænta töluverðrar hækkunar á aðalvísitölu fyrir heimilisnauðsynjar í byrjun októ- ber næstk., jafnvel þótt nokkuð af þeirri hækkun, sem kemur fram í ágústsvísi- tölu fyrir matvörur sé árstíðarhækkun. Eftir að verðlag tók að stíga á síðast- liðnu ári og á fyrri hluta yfirstandandi árs, hafa stórir hópar faglærðra manna í Reykjavík fengið laun sín hækkuð, og nú fyrir nokkru hafa verkamenn einnig fengið töluverða kauphækkun. — Tillögur þær, sem stjórnin hafði lagt fyrir fundin voru samþykktar með nokkrum breytingum, var önnur ítrek- un á áskorun til bæjarstjórnar frá 12. ágúst um hundraðshlutauppbót á heild- arlaun árið 1937 vegna dýrtíðar, en hin var um kosningu launanefndar, sem hefði tækifæri til að fylgjast með gjörð- um launanefndar bæjarstjórnar. Voru breytingatillögurnar frá hr. Lárusi Sig- urbjörnssyni, hr. Magnúsi V. Jóhannes- syni og hr. Jóhanni G. Möller. Var nú launanefnd kosin og í hana hr. Nikulás Friðriksson.hr.Lárus Sigurbjörnsson og hr. Jóhann G. Möller, en jafnframt lýsti fundurinn yfir ánægju sinni yfir fram- komnum tillögum hr. Árna Björnssonar hagfræðings og fól stjórninni að fylgja launamálinu fast eftir á þeim grund- velli, sem þar væri bent á. Launamálið var nú komið inn á nýj- ar brautir, þar sem kosnar voru nefnd- ir frá báðum aðilum, en þar sem undan- dráttur varð á því, að nefndirnar kæmu báðar saman, þótti þurfa að herða á kröfunum með eftirfarandi áskorun, er launanefnd St. R. lagði fyrir félagsfund 22. des. 1937:

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.