Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Side 18

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Side 18
10 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR I. Allir starfsmenn þessa bæjarfélags munu kannast við aukaþóknunina, sem fastir starfsmenn bæjarins fá „fyrir hvern ómaga, sem þeir hafa á framfæri sínu“ — hina svo nefndu ómagauppbót. Laun og barnafjöldi. Eftir Jóhann G. Möller. Þessi ómagauppbót er ekki sérlega risa- vaxin og hrekkur vitanlega skammt til framfærslu, enda er ekki laust við að sumir dragi dár að henni fyrir það, hve lítil hún er, og aðrir telji hana vera forn- aldardraug, sem hið skjótasta þyrfti að daga uppi. Flestir, sem þannig hugsa, eru þeir, sem ekki njóta þessarar upp- bótar, en hinir, sem hafa rétt til henn- ar, munu telja hana nokkurn búhnykk, þótt hún sé lítil. Er það mín skoðun, að þó ómaga- uppbótin sé lítilfjörleg, þá sé hún mjög merkilegur hlutur í íslenzku launakerfi, áhrif á sálarlíf mannsins og magnar sjálfsbjargarhvöt hans og gerir hann að betri borgara. Þetta eru ástæður, sem ekki er hægt að rengja, og sem eru svo veigamiklar að ætla má að það opinbera vildi eitthvað gera til að ráða hér nokkra bót á, og það má víst gera ráð fyrir að menn vildu eitthvað á sig leggja til að eignast framtíðar heimili, og hef ég hugsað mér, að það gæti orð- ið, hvað snertir starfsmenn Reykjavík- ur, á þann hátt, að myndað yrði bygg- ingarfélag innan starfsmannafél. Þetta félag fengi lánaðan ellistyrktarsjóð bæjarins, að svo miklu leyti sem hann er ávaxtaður í skuldabréfum, einnig gæti bæjarsjóður, sér að skaðlausu, gengið í ábyrgð fyrir félagið að láni í þessu skyni. Endurgreiðslu starfsmann- anna væri heppilegast að taka af laun- um þeirra mánaðarlega, svo áhættan er engin. Þá vil ég leyfa mér að benda á lóðir undir húsin, það er svæðið sunnan við Laufásveg, frá Hringbraut austur að Öskjuhlíð. Matjurtagarðar og grjót- garðar, sem þarna eru, verða að víkja, enda ekki rétt að slík ræktun fari fram við dýrar götur, sem bærinn leggur í öll þægindi og þarf þar af leiðandi að breyta lóðunum í byggingarlóðir, svo bærinn fái eitthvað upp í kostnaðinn. Gætu starfsm.fél. tekið sér byggingar fél. Félagsgarður til fyrirmyndar um útlit og skipulag. Þess er að vænta, að núverandi stjórn félagsins taki þetta mál til athugunar og skora ég á félagsmenn að snúa sér að þessu máli undir forystu hennar, þar sem launamálið er nú bráðlega úr sög- unni, og menn hefðu gott af að fara að íhuga að launaupphæðin er ekki allt, og það er ekki minni vandi að gæta feng- ins fjár, en afla. Árni Árnason.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.