Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Qupperneq 20

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Qupperneq 20
12 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR En þær sýna að áhrif fæðunnar á heil- brigðið eru miklu þýðingarmeiri, heldur en haldið var fyrir 30 árum síðan, og að sérstaklega í bernzku er framið glæp- samlegt athæfi með ófullnægjandi fæðu gagnvart heilsu og líkamsbyggingu manna. Og í öðru lagi sýna þessar rann- sóknir, að kostnaður við öflun hinna bráðnauðsynlegu fæðitegunda barnsins, svo sem mjólkur, smjörs, ávaxta, græn- metis o. s. frv., er talsvert meiri en áður fyrr, er menn héldu að ákveðnar matar- reglur væri sama og að borða, þannig að hungrið sefaðist aðeins. Þessar rann- sóknir sýna okkur, að almenn hæfni hverrar þjóðar geti algjörlega endur- skapast, ef menn færðu sér í nyt hina nýju þekkingu um áhrif fæðunnar. En aðal Þrándurinn í Götu þess er, að tekjur þeirra fjölskyldna, þar sem ungbörnin eru, eru svo litlar, að þær nægja ekki þótt vel sé á haldið, til þess að afla þeirrar fæðu, sem er undirstaða góðrar heilsu og heilbrigðrar þroskun- ar. Ein afleiðing þessa er svo aftur kyrr- staða í fjölgun ýmsra þjóða. Út í þá sálma skal ekki farið hér, en það er óhætt að ganga út frá því sem stað- reynd, eins og högum manna er nú almennt háttað, að við fæðingu hvers barns, um fram tvö, sé barninu og for- eldrunum lagðir mjög alvarlegir erfið- leikar á herðar. En afleiðing þessa er aftur sú, að tiltölulega mikill fjöldi barna hverrar þjóðar öðlast aldrei það sjálfsagða tækifæri, sem nauðsynlegt er, til þess að börnin geti þroskast og orðið heilbrigður maður eða kona. Af- leiðing þessa er svo tíðast sú, að börn- in hætta að fæðast og þjóðinni fækkar unz hún deyr út. Hið augljósa svar við þessu, er að ryðja þeirri hindrun úr vegi, sem lögð er á herðar hinum stærri fjölskyldum, og veita þeim þóknun af hinni sameig- inlegu eign þjóðarinnar. Hér er ekki um að ræða neitt nýtt fyrirbrigði, enga byltingarkennda hugsun, því að flestar þjóðir hafa í einhverju formi viður- kennt grundvallaratriði þessarar stefnu, til dæmis með fátækraframfærinu og fleiru. Ég hefi hér að framan skírt að nokkru þá grundvallarhugsun, sem ómaga-uppbætur hvíla á. Síðustu árin hafa ýmsar þjóðir lögfest greiðslur vegna ómaga og virðist þeirri stefnu, að taka beri sérstakt tillit til fjölskyldu- stærðar, þegar um launagreiðslur er að ræða, vaxa mjög fylgi. Mun ég í næsta blaði skýra nokk- uð frá, hvernig þessum málum er hátt- að í ýmsum löndum og ef til vill gera einhverjar uppástungur um fyrirkomu- lag þessara mála hjá okkur. Ómagauppbótin fyrir yfirstandandi ár. Nýlega hefir bæjarráð lagt til að ómagauppbót yrði greidd fyrir þetta ár, eins og að undanförnu, með kr. 20,00 á ómaga. Hafði stjórn Starfsmannafél. skrifað borgarstjóra og farið þess á leit, að, enda þótt allsherjar endurskoðun væri nú á döfinni á launamálum bæjar- ins, þá yrði uppbótin greidd fyrir þetta ár, en starfsmönnum greitt síðar til við- bótar, ef hækkun yrði á þessari auka- þóknun á árinu, sem stjórnin taldi mjög æskilegt.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.