Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Síða 26
18
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
Frá ritnefndinni.
Á fundi í stjórn Starfsmannafélags
Reykjavíkur þ. 5. þ. m. var afráðið
að nota heimild til útgáfu blaðs, sem
yrði málgagn félagsins, og var þá þeg-
ar kosin ritnefnd. Hana skipa Lárus
Sigurbjörnsson, aðstoðarmaður bæjar-
gjaldkera, Jóhann G. Möller, aðalbókari,
og Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi.
Annast ritnefndin útgáfu blaðsins og
ber mönnum að skila handritum til
hennar. Nefndin hefur skipt með sér
störfum og er Lárus Sigurbjörnsson
formaður.
Vegna þess að sumarfrí voru um það
bil að hefjast, þegar útkoma blaðsins
var afráðin, hefur henni seinnkað meir
en skyldi og biður ritnefndin velvirð-
ingar á því. Auglýsingastjóri blaðsins
hefur verið ráðinn Einar Kristjánsson,
og er tekið við auglýsingum í blaðið á
auglýsingaskrifstofu hans, Austurstræti
12 (áður afgreiðsla Vísis). Á þessu ári
er áformað að gefa út 3 blöð, komi
annað blaðið út í októberbyrjun, en
þriðja blaðið fyrir jól. Annars er ætlast
til að blaðið komi út 6 sinnum á ári, en
aukablöð ef ástæða þykir til. Blaðið
verður sent öllum félögum í Starfs-
mannafélagi Reykjavíkur, a. m. k. fyrst
um sinn, án aukagjalds, en aðrir geta
gerst áskrifendur að blaðinu gegn 5 kr.
ársgjaldi.
Ritnefndin hefir ákveðið, að blaðið
verði að jafnaði 16 lesmálssíður. Að
þessu sinni varð þó ekki komist hjá að
hafa blaðið 18 síður, vegna þess að
ýmsu efni, sem fyrir lá, var ekki hægt
að fresta.
Vonar ritnefndin að félagar Starfs-
mannafélagsins hafi bæði gagn og
ánægju af lestri blaðsins, og sendi því
hugsanir sínar í óbundnu og bundnu
máli, og geri að öðru leyti sitt til að
auka veg þess og velgengni.
Ritnefndin.
hversu slökkviliðinu hefir vaxið ásmeg-
in undir forystu hans, á þessum 20 ár-
um, svo að nú virðist það hverjum
vanda vaxið, sem að höndum kann að
bera. Og það eru ótaldar krónurnar,
sem þessi staðreynd hefir sparað bæjar-
félaginu á umliðnum árum.
Pétur Ingimundarson er félagslyndur
maður og góður félagi. Hann hefir mik-
inn áhuga fyrir málefnum starfsmanna-
félagsins og á nú sæti í stjórn þess.
Er félaginu ómetanlegur styrkur að því,
er slíkir menn taka virkan þátt í störf-
um þess.
Það er óþarft að minnast hér æfi-
atriða Péturs Ingimundarsonar, það
hefir verið rækilega gert í dagblöðum
bæjarins, enda er hér aðeins um að
ræða áfanga á vonandi langri æfileið.
Á Pétri sjást engin ellimörk, hann er
eins nú, og hann var fyrir tuttugu
árum.
En starfsmannafélagið óskar Pétri
til hamingju með þetta tvöfalda af-
mæli, og vonar að hans megi ennþá lengi
njóta við, sem starfsmanns og félaga.
H. H.
STI2INDÓRSPRENT H.P.