Bankablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 11

Bankablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 11
Úr afmœlishófinu; m. a.: Hannes Adólf og Bjarni. Þakkaði hann sænskum bankamönnum góða forystu í hagsmunamálum nor- rænna bankamanna og árnaði afmælis- barninu heilla. Eins og fyrr segir voru margar afmæl- isræður fluttar, en mesta athygli vakti ræða, sem einn af frumherjum samtak- anna og forystumaður um áratjil, Viktor von Zeipels, flutti. Þessi virðulegi, grá- hærði öldungur, sem er áttatíu og fimm ára gamall, flutti langa ræðu blaðalaust, þar sem liann brá upp ýmsum skyndi- myndum liðins tima. Ræðan var fjörlega flutt og myndu fáir leika eftir, þótt yngri væru. Ræðumaður var hylltur geysilega og var hann maður kvöldsins í eiginleg- um skilningi. Að loknum ræðuhöldum var dans stig- inn fram til klukkan eitt, en samkomu- gestir munu hafa verið um fimm hundr- uð Þess má að lokum geta, að við nutum frábærrar gestrisni forystumanna sænskra bankamanna þessa daga, sem við dvöld- um í Stokkhólmi. Fórum við víða um borgina og skoðuðum banka og aðra merka staði undir leiðsögn pol. mag. Bo Hygrell. Var ferð þessi hin ánægjuleg- asta og mun verða minnisstæð. íslenzkir bankamenn samfagna afmæl- isbarninu og árna sænskum bankamönn- um lteilla. BGM AJþjóðasuniarslíóImn í Mosltvu Hinn árlegi Alþjóðasumarskóli banka- manna var að þessu sinni haldinn í Moskvu í júnímánuði s.l. Samband ís- lenzkra bankamanna var boðið að senda tvo fulltrúa á skólann og var ákveðið, að þeir Björn Tryggvason, skrifstofustjóri Seðlabankans og Þorsteinn Friðriksson, aðalfulltrúi í gjaldeyrisdeild Útvegsbank- ans færu til Moskvu. BANKABLAÐIÐ 9

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.