Bankablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 20
ræðufundur um þessi mál væri kallaður
saman, þar sem fulltrúar bankanna og S.I.B.
ræddu málin. Fundurinn var haldinn
í aprílmánuði s.l. Voru þar lagðir fram
nokkrir punktar um þessi mál sem við-
ræðugrundvöllur, og farið fram á að samn-
ingsréttur bankamanna væri viðurkenndur.
F’orráðamenn bankanna tóku málinu af
skilningi og töldu ekkert því til fyrirstöðu
að viðræður um launamál væru teknar
upp á þeim grundvelli, ef samningar tækj-
ust ekki, þá myndu málin lögð í gerð, en
töldu að bankaráðin þyrftu að fjalla um
málin áður en endanleg ákvörðun væri tek-
in. Fljótlega kom í ljós, að bankaráðin
töldu sig bresta lagaheimild til að veita
okkur svipaðan rétt og opinberum starfs-
mönnum, þar sem ákvæði i bankalögunum
væru skýr og ótvíræð um að bankaráðin
skyldu setja reglur um launakjör banka-
starfsmanna og gætu því ekki nema með
lagabreytingu afsalað sér þeim rétti. Var
leitað lögskýringa til lagaprófessora við
Háskóla Islands og töldu þeir útilokað að
veita okkur sama rétt og opinberum
starfsmönnum er ákveðin í lögunum um
samningsréttinn. Þeir telja þó að ekkert
mæli á móti því, að ný reglugerð sem
bankaráðin samþykktu væri árangur af
samningsviðræðum við Samband íslenzkra
bankamanna og fulltrúa bankanna. Að
fengnum þessum upplýsingum, þá taldi
S.Í.B., rétt og sjálfsagt að þrautreyna þá
leið til samkomulags, að teknar væru
nú þegar upp viðræður uni setningu nýrr-
ar launareglugerðar á áðurnefndum grund-
velli, án þess að leitað væri til Alþingis um
lagaheimild. Það er skoðun sambands-
stjórnarinnar að rneiri líkindi séu til hag-
kvæmari lausnar þessa máls, að ekki verði
leitað út fyrir bankana, þar sem telja má að
gerðardómur verði skipaður embættis-
mönnum sem ekki eru líklegir til að kveða
Anfon Halldórsson
sexingur
Anton Halldórsson, starfsmaður í Lands-
bankanum varð sextugur 31. maí s.l.
Það er ekki ætlan mín að skrifa hér ævi-
minningu Antons, enda ekki ástæða til, því
jreir sem til Jrekkja myndu vart ætla að sex-
tíu ár væru að baki.
Það hefir margt driíið á dagana hjá af-
mælisbarninu svo sem: Námsár í Dan-
mörku, matreiðsla á Hótel Borg og Litla-
Hrauni, stofníélagi í Matsveina- og veit-
ingajrjónafélaginu og nú síðasta áratuginn
a. m. k. starfsmaður í Landsbankanum.
Anton er dagfarsprúður í umgengni, ró-
lyndur, fastur fyrir, ef á hann er leitað, en
sýnir öllum fyllstu sanngirni. Frjálslyndur
í skoðunum og gamansamur. Hann er af-
burðavinsæll í staríi og hefir unnið starfs-
lólki bankans mikið og óeigingjarnt starf,
sem yíirmaður og stjórnandi mötuneytis
bankans, sem verður seint íullþakkað.
Ég árna afmælisbarninu allra heilla og
vænta samstarfsmenn hans þess að mega
njóta starfskrafta hans sem allra lengst.
BGM
á um hærri laun og hagkvæmari kjör til
lianda bankamönnum, en ríkisstarfsmönn-
um. Þá er leiðin til Aljringis opin ef það
kemur í ljós, að ekki fáist samstaða um
setningu nýrrar launareglugerðar.
Fimmtudaginn 18. okt. s.l. var fyrsti
íundurinn um kjaramálin. Fundinn sátu
fulltrúar allra bankanna og stjórn S.Í.B.
Ekki þykir ástæða til að skýra nánar frá
umræðum, en á fundinum kom fram ein-
dreginn vilji beggja að leysa þessi mál, eins
vel og fljótt og ástæður leyfa.
18 BANKABLAÐIÐ