Bankablaðið - 01.07.1962, Page 32
Venjulega fara skákmót innan bankanna
fram síðari hluta árs, og í síðasta Banka-
blaði er sagt frá mótum í Landsbankanum
og Búnaðarbankanum í árslok 1960. En
ekki hafði árið 1961 fyrir löngu gengið í
garð, þegar formleg keppni í skák hófst
aftur, með því að Landsbankinn og Bún-
aðarbankinn mættust hinn 16. janúar á
12 borðum í samkomusal Landsbankans,
sem sigraði með 714 vinningi gegn 4i/2.
Hinn 18. janúar hófst firmakeppni Skák-
sambands íslands og stóð til 1. marz 1961.
Útvegsbankinn sendi eina sveit, en Lands-
bankinn og Búnaðarbankinn tvær hvor.
Útvegsbankasveitin var sú eina, sem átti
þátttökurétt í efsta flokki, A.-flokki. Þar
hlutu þeir III. verðlaun, sem er gott í svo
sterkum flokki. Ekki verður komizt hjá því
að geta frammistöðu hinnar öldnu skák-
kempu, Jóhanns Árnasonar, sem keppti á
4. borði sveitarinnar, og náði ágætum
árangri við ýmsa þekkta og sterka menn.
A-sveit Landsbankans tefldi í B.-flokki,
og vann þar I. verðlaun og þátttökurétt-
indi í A.-fl. næsta ár. B-sveit bankans
keppti í E.-flokki og hafnaði þar í fimmta
sæti, en mikil forföll urðu hjá sveitinni
vegna veikinda.
A-sveit Búnaðarbankans varð þriðja í
C.-flokki, en B-sveit bankans vann aftur á
móti I. verðlaun í G.-flokki og færist upp
í flokkinn fyrir ofan í næstu keppni.
Hin árlega skákhátíð, Hreyfilskeppnin,
fór fram í apríl. Nú buðu bílstjórar, og
var veizla hin bezta á Hlégarði og gest-
risni mikil hjá þeim, svo sem alltaf hefir
verið. Var ekki laust við, að bankamenn
hefðu orð á því, að á þá hallaði í viðskipt-
um við Hreyfilsmenn, livað snertir gest-
risni. Mjög gott húsnæði var þarna einnig
fyrir keppnina sjálfa. Var hún hörð, og
lyktaði með sigri bankamanna, sem hlutu
16i/2 vinning gegn l$l/2. Keppt var um bik-
ar frá Landsbankanum nú í annað sinn,
og hafa bankamenn unnið hann í bæði
skiptin. Við þetta tækifæri var Margréti
Þórðardóttur úr Búnaðarbankanum færð-
ur að gjöf silfurskál frá Landsbankanum
í tilefni af því, að þarna keppti hún í
fimmta sinn fyrir sambandið og hefir alla
tíð verið eini kvenþátttakandinn.
Margrét Þórðardóttir (Búnaðarb., III. sv.) tefl-
ir við Björgvin Ólafsson (fsl. aðalverktakar,
ll.sv.). Bróðir Björgvins, Yngvi Ólafsson,stjórn-
arráðsfulltrúi horfir á. Margrét vann.
30 BANKABLAÐIÐ