Jazzblaðið - 01.04.1949, Side 14
fyrir Duke í mörg ár hefur samið og
útsett margt með honum, svo sem
„theme song“, eða kveðjulag hljóm-
sveitarinnar „Take the A train“. Auk
áður getinna manna hafa leikið með
Cootie Williams.
Duke snillingar eins og Jimmy Blanton,
Rex Stewart, Ben Webster, Taft Jordan
og Oscar Pettiford. Dizzy Gillespie lék
þar meðal annars í nokkra mánuði.
Núna eru t. d. með Duke hinn ágæti
klarinetleikari Jimmy Hamilton, sem
tók við af Bigard 1943. A1 Sears tenór-
saxafónleikari er þar nú og einnig
Webster ásamt trombónleikaranum
Tyree Glenn að ógleymdum Brown.
Duke er tvímælalaust frægasti sonur
jazzins, sem betur fer er hann ekki
nema fimmtíu ára svo að jazzleikarar
og jazzunnendur um heim allan eiga á-
reiðanlega eftir að heyra margt gott
Lawrance Brown.
frá honum í framtíðinni. Hann er út-
setjari með afbrigðum. Segja má, að
hann hugsi í hljómsveitarformi, og pí-
anóleikur hans ber meiri keim af hljóm-
sveitar en píanóverki. Hljómsveitar-
stjóri er Ellington eins góður og þeir
framast geta orðið, píanóleikari ekki
hvað síztur og að lokum eitthvert
fremsta tónskáld Bandaríkjanna.
S. G.
Eftirfarandi textar hafa blaðinu verið
sendir frá ísafirði:
UNA
Lag: Put another chair at the table.
Una, þú ert von minna vona,
Una, mér ert kær, kysstu mig.
Una þér ég ann,
hjarta mitt það brann
er ástina ég fann heltaka mig.
Una, viltu verða mín kona?
Una, komdu nær, ég elska þig.
Arnar.
AÐ GEFA ÞÉR GÆTUR
Lag: Four Ieaf clover.
Að gefa þér gætur, um niðdimmar
nætur,
í næði’ er svo notalegt,
og eiga sér unnustu einlægan vin
ó, hve við eigum gott elskan mín.
Ó, meyja þú lætur, mig hafa á þér
mætur,
mundi þér finnast það frekt,
að gefa þér gætur um niðdimmar nætur,
í næði er svo notalegt. Arnar.
14 $a»tíah&