Jazzblaðið - 01.04.1949, Page 24
Plötur. Nú hafa plötufyrirtækin í
Bandaríkjunum sett á markaðinn nýja
gerð hljómplatna. Það eru tólf tommu
plötur (stærri gerð platna) sem hægt er
að leika í 45 mínútur. Þetta þykir afar
hentugt, sérstaklega þar sem stór klass-
isk verk eru annars vegar, og þá engu
að síður jazzmúsik. T. d. lék Woody
Herman hljómsveitin „Sequence in jazz“
eftir útsetjarann Ralph Burns inn á eina
slíka plötu. Sá galli fylgir þó þessu, að
kaupa verður sérstakan grammófón til
að leika plöturnar en plötufyrirtækin
framleiða þá einnig, svo að þetta er að
slá „tvær flugur í einu höggi“ hjá þeim.
Charlie Barnet er nú með hljómsveit,
sein gagnrýnendur telja sérstaklega
góða og líkja jafnvel við hljómsveit
Woody Herman. Helztu menn hljóm-
sveitarinnar eru trompetleikararnir
Lamar Wright og Doc Severenson,
bassaleikarinn Safranski, trommuleikar-
inn Cliff Leemann og trombónleikarinn
Dick Kenney, ásamt baritón-saxafón-
lcikaranum Danny Bank.
Róbert Þórðars. skrif-
ar frá Los Angeles.
Duke Ellington hélt
hljómleika í Holly-
wood um mánaðamót-
in jan.—febr. A1 Hibbl-
er söngvari hljómsveit-
arinnar vakti mesta
hrifningu meðal áheyrenda sem voru
nokkur þúsund. Einnig vöktu þeir Ben
Webster tenór-saxafónleikari og Jimmy
Hamilton klarinettleikari athygli með
Be-bop leik sínum. Hinn nýi ungi bassa-
leikari hljómsveitarinnar Wendell Mars-
hall reynist afar góður og má mikils
vænta af honum í framtíðinni. — Ný
ágæt kvikmynd er komin á markaðinn
og heitir hún eftir lagi Louis Jordan
„Look or sister“. Jordan hljómsveitin,
sem skipuð er sjö mönnum leikur mörg
lög i myndinni. — Mary Kaye tríóið
hefur leikið undanfarið á vesturströnd-
inni og vakið mikla eftirtekt. Mary leik-
ur á guitar, bróðir hennar á bassa og sá
þriðji i tríóinu leikur á píanó. •— Kveðja.
Róbert.
Hitt og þetta. Don Lamond trommu-
leikari er fyrir stuttu hættur hjá
Woody Herman og fór til Harry James.
Verið getur að Shadow Wilson taki sæti
hans hjá Woody. — Earl Hines píanó-
leikari, sem um skeið hefur leikið í
hljómsveit Louis Armstrong, er að
hugsa um að stofna eigin hljómsveit.
— Ray Eberley hefur lagt niður hljóm-
sveit sína. Hann ætlar að halda áfram
sem sjálfstæður söngvari. — Ray Ant-
hony trompetleikari hefur nýlega end-
urskipulagt hljómsveit sína og er hún
nú mjög góð. — Tex Beneke hefur nú
lagt niður fiðlurnar í hljómsveit sinni.
Of kostnaðarsamar. Hann segist ætla
að reyna að gera hljómsveitina ennþá
líkari gömlu Glenn Miller hljómsveit-
inni en verið hefur. Hann og Paul Tann-
er trombónleikari eru þeir einu, sem eft-
ir eru af upprunalegu hljómsveitinni
síðan Glenn féll frá fyrir nokkrum
árum. — Gene Morris heitir núver-
andi tenór-saxafón sólóisti Lionel
Hampton hljómsveitarinnar. — King
Cole tríóið heitir fyrst um sinn King
Cole quartettinn, því fyrrverandi Stan
Kenton bongo-trommuleikari Jack Co-
24 $c,