Jazzblaðið - 01.10.1949, Page 10
Fyrir tuttugu árum byrjaði Carl
Billich fyrst með eigir. hljómsveit og
var það í Vínarborg. í hljómsveit þess-
ari, sem hann var með í eitt ár, voru
fimm menn. Síðan lék Billich á píanó í
stórri hljómsveit, er lék í stærsta kvik-
myndahúsi borgarinnar. Hljómsveit þessi
lék í klukkustund á milli kvikmynda-
sýninga. Þarna var Billich í þrjú ár eða
allt þangað til hann réðst hingað til
íslands, ásamt Felzmann fiðluleikara og
cellóleikara að nafni Cherney. Hljóm-
sveitin lék að Hótel íslandi allt fram til
1940, en tók nokkrum breytingum á
þeim tíma. Karl Matthíasson var lengst
af í henni, og einnig voru þeir Þorvaldur
Steingrímsson, Sveinn Ólafsson og Jó-
hannes Eggertsson í henni um nokkurn
tíma og frá 1938—40 þeir Skafti Sig-
þórsson, Adólf Theódórsson, Bjarni Guð-
jónsson og Jakob Einarsson.
Eins og kunnugt, varð Billich að
hverfa af landi burt í stríðinu, en hann
hafði fullan hug á að koma hingað aft-
ur og setjast hér að, sem hann lét og
verða sitt fyrsta verk eftir stríðið, og
varð hann nú fyrir nokkru íslenzkur
ríkisborgari.
Billich var orðinn mjög vinsæll hljóm-
listarmaður hér fyrir 1940, hljómsveitir
þær, er hann stjórnaði að Hótel ísland,
voru allar mjög góðar og einnig var
mikil stoð að Billich á öðrum sviðum.
Hann var mjög snjall útsetjari og átti
M. A.-kvartettinn honum mikið að þakka
og eins er með fleiri.
Þegar hann kom aftur til landsins
1947 byrjaði hann fyrst í hljómsveit
Björns R. Einarssonar, en skömmu síð-
ar tók hann við stjórn hljómsveitarinn-
ar á Hótel Borg. Nokkrar breytingar
hafa átt sér stað í hljómsveitinni frá
10 ^azzlUií