Jazzblaðið - 01.10.1950, Síða 11
í Svíþjóð er sérlega góð söngkona, að
nafni Alice „Babs“ Sjöblom. Hún er
ágæt dægurlagasöngkona og mun betri
jazzlaga og Be-bop söngkona. Margar
uppfærslur um landið þvert og endilangt
°g í útvarpinu, ásamt hljómleikum er-
lendis og nokkrum plötum, hafa fært
nianni sannanir um hina frábæru hæfi-
leika hennar á, að syngja jazzmúsík.
Þetta, ásamt hinni prúðu framkomu
hennar, hefur gert hana að vinsælustu
söngkonu Svíþjóðar.
Það er einstaklega gott að vinna með
henni, og get ég dæmt eftir eigin
reynslu, því að mér hlotnaðist sá heið-
ur að vera í hópi þeirra, sem uppgötv-
uðu hana, er hún söng með hljómsveit
uiinni aðeins sextán ára gömul, en síð-
an eru um tíu ár. Nú orðið kemur hún
BENNY AASLVND,
fréttaritari Jazzblaðsins í Svíþjóð
skrifar um sönglconuna:
ALICE „BABS'1
SJÖBLOM
mjög sjaldan fram opinberlega, og er
leitt til þess að vita.
Einnig hefur hún leikið í nokkrum
kvikmyndum við miklar vinsældir.
Þann 17. ágúst kom hún fram á
„Gröna Lund“ í Stokkhólmi, og eins og
vanalega vakti hún mikla hrifningu.
Það var augljóst, að aðrar söngkonur
hér geta mikið af henni lært, ef þær
ætla að ná sömu frægð og hún.
Ég hringdi í hana til að spyrja, hvort
hún hefði nokkuð nýtt á prjónunum á
næstunni:
— Halló.
— Já, þetta er frú Sjöblom.
— Sæl vertu, þetta er Benny.
— Nei, langt síðan maður hefur heyrt
í þér, hvað er í fréttum?
Og síðan tölum við fram og aftur og
rifjum upp gamlar endurminningar, og
svo:
— Ég hringdi til að spyrja þig, hvort
þú værir með eitthvað nýtt á prjónun-
um.
— Nei, ekki neitt. Ég hef ekki mik-
inn tíma til að koma fram opinberlega,
þar sem eiginmaðurinn og börnin
standa í vegi fyrir þvi. En þau koma
auðvitað fyi’st. Framh. á bls. 18.
11