Jazzblaðið - 01.10.1950, Side 16
BANDARÍKIN
★ Fats Navarro trompetleikari, einn
allra bezti Be-bop leikarinn, sem
fram hefur komið, lézt úr berklum
í New York fyrir nokkrum vikum,
aðeins 26 ára gamall. Hljóðfæra-
leikarar og nokkrir jazzunnendur í
New York sáu um allan kostnað við
útförina. (Sjá nánar grein um Na-
varro á bls. 14 í þessu hefti).
★ Red Norvo, hinn heimsfrægi vibra-
fónleikari, er nú með eigið tríó, sem
leikur í næturklúbb í Hollywood. Norvo
segist aldrei hafa verið eins ánægður
með hljómsveit sína og nú. Með honum
eru Ted Farlow á guitar og Red Kelly
á bassa.
★ Ralp Flannagan hljómsveitinni, sem
sem minnst var á, fyrir nokkrum mán-
uðum í þessum dálkum, aukast vinsæld-
ir dag frá degi. Líklega á hún eftir að
verða ein vinsælasta hljómsveit ársins
þar ytra.
★ Stan Getz, er varð númer eitt á tenór-
saxófón í kosningum Bandaríska tón-
listarblaða síðastliðið ár, þá aðeins tutt-
ugu og þriggja ára, leikur nú mikið inn
á plötur með litlum hljómsveitum. Plöt-
ur þessar eru allar skínandi að gæðum,
eftir því sem Bandarískir gagnrýnend-
ur segja og má fullyrða, að Stan sé í
sérflokki meðal jazzleikara í USA þessa
mánuðina.
★ Charlie Parlcer altó-saxófónleikari
kom fram nýlega á næturklúbbnum
Birdland í New York með þá einkenni-
legustu hljómsveit, sem enn hefur heyrzt
leika jazz. Skipun hennar var þrjár fiðl-
ur, celló, óbó, harpa, píanó, bassi og
trommur, ásamt Parker. Þetta er sama
hljómsveitin og Parker hafði leikið með
nokkru áður inn á plötur fyrir „Mer-
cury“.
★ Jo Jones trommuleikari og Shadow
Wilson hafa nóg að gera með að leysa
hvorn annan af í hljómsveitum. Þegar
Jo hætti hjá Basie fyrir rúmu ári, tók
Shadow við og fór Jo þá til Illinois
Jacquet, en þar hafði Shadow verið.
Síðan hafa þeir skipt aftur og enn eru
þeir að skipta, þ. e. a. s. Shadow er ný-
hættur hjá Jacquet og Jo tók við.
ENGLAND
★ Franlc Sinatra hefur sungið í London
í sumar og vakið geysimikla athygli.
Má segja að útselt hafi verið á hverri
einustu sýningu, er hann kom fram á,
og var það á „Palladium". Jack Baver-
16 $aIzlLí:i