Útvarpsblaðið - 23.02.1951, Side 2
Fylgt úr hlaði
UTVArpsblaðiÐ
Blafii því, sem hér hefur göngu sína, er fyrst og
fremst ætlað að verða tengiliður útvarps og út-
varpshlustenda. Því er ætlað að ktjnna helztu dag-
skrárliði Ríkisútvarpsins og einnig að koma á fram-
færí áliti hlustenda og gagnnjni, varðandi dag-
skrána í heild, einstaka dagskrárliði og flutning
þeirra svo og óskum hlustenda og tillögum, varð-
andi útbarpsefni. En auk þess mun hlaðið fltjtja
greinar og fræðslupistla, varðandi tónlist, leiklist
og hókmenntir.
Hvað gagnrýnina snertir, er ekki að búast við
því, að hennar gæti í fyrstu töluhlöðum „Utvarps-
blaðsins", svo nokkru nemi, þar eð hún verður fijrst
og fremst að koma frá lesendum þess. Að vísu get-
ur ritstjórinn sagt }>ar sína skoðun, varðandi ein-
stök dagskráratriði, en aðeins sem einn úr hópi
hlustenda, en gagnrtjnin getur ]>ví aðeins túlkað
skoðanir og viðhorf hlustenda, að nokkur hópur
þeirra segi álit sitt. Og gagnrf/nin verður að sama
skapi áreiðanlegri heimild um viðhorf þeirra, sem
sá hópur er fjölmennari.
„Útvarpsblaðið“ vill því hiðja lesendur sína, að
þeir sendi því stuttar greinar eða greinarstúfa, þar
sem rædd séu einstök dagskráratriði og dagskrár-
liðir útvarpsins og flutningur þeirra, með tilliti til
að þær greinar hirtist í hlaðinu, annaðhvort í heilu
lagi, eða kaflar úr þeim. Ekki verður þó annað birt,
en það sem herst undirritað fullu nafni sendandans,
en að sjálfsögðu ræður hann hver undirritunin verð-
ur þegar það birtist, og heitir ritstjórinn þagmxlsku,
varðandi nafn hans. \Þau önnur skilijrði set-
ur blaðið væntanlegum höfundum slíkra greina, að
þeir láti sanngirni ráða dómum stntim og heiti
gagnrýninni eins og drengjum sæmir.
Og enn eitt, — getið þess, sem ykkur þykir lofs-
vert engti síður en hins, sem þið teljið, að betur hefði
mátt fara. Þeir, sem samið hafa eða flutt góð dag-
skráratriði, eiga viðurkenningu skilið, engu stður
en hinir aðfinnslurnar, auk þess sem viðurkenn-
ingin getur orðið þeim ftjrrnefndu nauðstjnleg hvöt
og styrkur. Og gagnrýnin getur heldur ekki orð-
ið áreiðanleg heimild um viðhorf hlustenda eða álit
þeirra á dagskránni í heild, nema þar komi hvort
tveggja í Ijós, — ánægja þeirra og óánægja.
Ritstj.
Ritstjóri og áhyrgðarmaður
LOFTUR GUÐMUNDSSON
Afgreiðsla
BÓKABÚÐ MENNINGARSJÓÐS
Hverfisgötu 21 — Reykjavík
Pósthólf 1043 - Sími 80282
Áskriftarverð kr. 55,00 — í lausasölu kr. 3,00
blaðið
Blaðið kemur út hálfsmánaðarlega
Prentað í
PRENTSMIÐJU HAFNARFJARÐAR H. F.
1 ...............................
Cramniófón-
l»Iötnr
frá His Masters Voice, Colum-
bia, Parlophone og M G M,
jafnaðarlega fyrirliggjandi í
miklu úrvali, bæði danzmúsik
og sígild músik.
Nýjar plötur koma venjulega ú
mánaðarfresti.
Aðalumboð fyrir His Masters Voice,
FÁLKINN H. F.
v._________________________________________,
2
ÚTVARPSBLAÐIÐ