Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 4

Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 4
skrár og hefir með höndum umsjón með framkvæmd hennar og setur gjaldskrá, í samráði við útvarpsráð. Undir stjórn útvarpsstjóra heyrir einnig Viðgerðar- stofa og Viðtækjasmiðja, svo og Við- tækjaverzlunin. 2. Þér eruð búinn að starfa að mörgum og fjölbreyttum málum í þágu útvarps- ins allt frá stofnun þess. — Hvaða verk- efni er yður hugþekkast frá þessum ár- um? Já, ég hefi verið hér fréttamaður og annast erlendar fréttir, hlustun þeirra, samningu og flutning. Ég annaðist um leikritin um tíma. Ég hefi séð um eða flutt marga þætti, suma meðan þeir voru að komast af stað eða tekið við af öðrum, lengi t. d. þáttinn Bækur og menn, einnig þáttinn Frá útlöndum, fræðsluþátt, sem byrjaði á yfirferð yfir Hávamál, oft áður fyrr þáttinn Um dag- inn og veginn, lausavísnaþátt o. fl. Ég man þetta nú annars ekki nákvæmlega, enda skiftir það ekki máli. Svo hefi ég haldið talsvert af einstökum erindum, t. d. annál ársins á hverju gamlárs- kvöldi alllengi, ég man ekki heldur í svipinn hvenær ég byrjaði á því. 3. Teljið þér núverandi verkaskiftingu útvarpsstjóra og útvarpsráðs eðlilega og œskilega, eða að hverfa beri að því ráði, að útvarpsstjóri láti meira til sín taka dagskrármál? Milli mín og útvarpsráðs hefir ævin- lega verið og er gott samkomulag og í því sitja góðir og áhugasamir menn. Á verkaskiftinguna er komin reynsla og svo er hún sæmilega ákveðin í iögum og reglum. Um afstöðu útvarpsstjóra til dagskrárinna;r er það að segja, að svo er fyrir mælt í lögum og reglum, að út- varpsstjóri annist undirbúning henn- ar og framkvæmd, en útvarpsráð taki ákvarðanir um það, hversu dagskrá skuli hagað í höfuðefnum og leggi fullnaðar- samþykki á hana og útvarpsstjóri situr fundi útvarpsráðs. Fyrrverandi útvarps- stjóri hafði að vísu ekki á hendi þenn- an dagskrárundirbúning, en gert er ráð fyrir að ég taki við honum með sam- verkamönnum mínum og er um það fullt og gott samkomulag við útvarps- ráð og formann þess. En ekki veit ég enn, hvenær sú nýja skipun verður að fullu komin á. 4. Nú hefir afnotagjald útvarpsins hœkkað að mun, en eru fyrirhugaðar verulegar umbætur á dagskránni? Já, gjaldið verður hækkað nokkuð samkv. ákvörðun Alþingis og er samt lægra en það ætti að vera eða gæti ver- ið, miðað við margt annað verðlag og breytt peningagildi. Að sjálfsögðu ætti bættur hagur útvarpsins að geta komið fram í dagskrárbótum og ég veit, að dag- skrárstjórnin hefir allan hug á því að gera dagskrána sem bezt úr garði. Það er viljj okkar allra hér. 5. Hvað er að frétía af byggingu út- varpsins? Því miður ekkert í svipinn. En við getum vonandi komið að því máli bráð- um aftur. 6. Þér eruð nýkomnir úr Ameríkuför og hafið sjálfsagt séð og heyrt margt, útvarp og sjónvarp? Já, þar er margt að sjá og heyra, stór- ar og glæsilegar útvarpsstöðvar og sjón- varpið á vafalaust mikla framtíð. 7.. Mega hlustendur ekki vœnta þess, 4 ÚTYARPSTÍÐINDI.

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.