Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 5
að þér lialdið ájram að flytja erindi með svipuðum hœtti og verið hefir undan- farin ár? Ég geri ráð fyrir því, að einhverju leyti öðru hvoru ,eftir því, sem við verð- ur komið. 8. Að lokum þetta: Liggur yður nolck- uð annað á hjarta, sem við gœtum kom- ið á framfœri við hlustendur? Þakka yður fyrir. Ég vildi hafa góða samvinnu við hlustendur, samvinnu um það, að efla hag útvarpsins, og ég vona að gott og fjölbrevtt efni haldi áfram að berast og við sjálfir getum fundið margt nýtt og nytsamlegt og skemmtilegt. — Hlustendur eru að sjálfsögðu mjög vel- komnir með tillögur sínar um nýtt efni eða athugasemdir um það, sem flutt hef- ir veriö. Gott útvarpsblað getur einnig orðið bar að góðu liði. Leikritaflutningar á næstunni LaugrarOaginn 7. marz verður ílutt í útvarpið Peningatréð eftir Gunnar Falcos. Loikrit þetta er skrifað sem útvarpsleikrit og er í einum þætti. T.lun flutningur þess taka um þrjá stundarfjórðunga. Leikstjóri er Þorstoinn Ö. Stephensen. Laugardasinn 14. marz: Carvallo eftir Dennis Cannan. Leikstjóri Gunnar Eyjólfsson. Ungt .'ónskóld kom eitt sinn til Arthurs Rubinstein og 1; ið hann að hlusta á tvær tón- smíðar cft.r s'j, og segja sér afdráttarlaust hvor betri væri. Rubinstein, sem raunar er margt annað betur gefið, en umburðarlyndi, hlýddi þolinmóður á fyrra lagið ,en jafnskjótt og því lauk, spratt hann á fætur og mæiti: „Síðara lagið er betra — miklu betra." Til móður minnar eftir H. Heine. I. Þeir segja, að ég hátt mitt höfuð beri og hofmóðugur sé í meira lagi. Og jafnvel þó ég sjálfan kónginn sæi mig sjónum líta, ég ei undan sneri. En móðir kær, þér opinskátt ég inni hvé oft hjá þér mér gerðist þungt i sinni og auðmjúkur var æ í návist þinni, sem óljós kvöl í hjarta mínu brynni. Ilvort heillar sál þín hug minn sem mig dreymi? Þín háa sál í lífsins öfugstreymi, sem leiftrar eins og ljós frá æðra heimi. Eða mín brot að vitund minni vega, sem valdið hafa hjarta þínu trega, því hjarta, sem mér unni eilíflega. II. Að heiman frá þér hélt ég ör í geði, á heimsins yzta jaðar farið skyldi, að finna þá ást er ævilangt mér fylgdi, og ástúð mig vefði í lífsins sorg og gleði. Á öllum strætum ástarsöng ég þuldi, við allra dyr, á hverjum gatnamótum, cg betlaði um ögn af ástarhótum, en alls staðar var svarið spott og kuldi. En áfram hélt ég óður, ferðum mínum, en ástin þráða jafnan fjarri sýnum. Ég hryggur sneri heim í æskurann. Þá fagnar þú mér, tókst mér opnum , armi, en, ó! — hvað sá ég blika þér á hvarmi. Þá ást er sál mín friðlaus hvergi fann. Kolbeinn kaldaljós sneri á íslenzku. ÚTVARPSTÍÐINDI 5

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.