Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 7

Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 7
Þessi mynd var tekin í hófi, sem samstarfsmenn og vinir Jónasar Þorbergssonar héldu honum, er hann lét af embætti. Er myndin af því starfsfólki Ríkisútvarpsins, sem starfað hefur lengst við stofnunina, en það eru (talið frá vinstri) Vilhjálmur Þ. Gísla- son, núverandi útvarpsstjóri, Páll ísólfsson, tónlistarráðunautur, Guðrún Reykholt, Jónas Þorbergsson, fráfarandi útvarpsstjóri, Gunnlaugur Briem, verkfræðingur, Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri, og Þórarinn Guðmundsson, hljómsveitarstjóri. Sveinbjörnsson, yfirmagnaravörður, Da- víð Árnason, stöðvarstjóri Norðanlands, Þórarinn Guðmundsson, hljómsveitar- stjóri, að ógleymdum Sigurði Þórðar- syni, skrifstofustjóra, sem frá öndverðu hefir staðið næstur mér í hverjum vanda og ég á mest að þakka. Og hér ber einn- ig að nefna Sigríði Bjarnadóttur, sem byggði upp með mér þá starfsdeild, er annast skráningu útvarpsnotenda og innheimtu afnotagjalda. Ásgeir Magnús- son hjálpaði mér manna mest við að móta fréttareglur útvarpsins og annað- ist einn allar fréttir útvarpsins fyrsta árið, alla daga, helga jafnt sem virka, og tók sér aldrei hvíld, enda mátti telja, að mjög mikið af frumvinnu við að móta ÚTVARPSTÍÐINDI og koma undirstöðum undir Ríkisút- varpið væri í þá daga sjálfboðavinna, þar sem hvorki var spurt um vinnutíma né eftirvinnukaup. Við vorum þá öll starfsfélagar, sem fengum að vísu lítið kaup, en til uppbótar mikið af sköpun- argleði. Þá skal þeim ekki gleymt, sem farnir eru, né þeim, sem unnið hafa í fjarlægð umboðsstörf við innheimtu og fréttastörf. Öllum þessum mönnum og öllum starfsfnönnum útvarpsins fyrr og síðar, sem hafa veitt mér dýrmæta, heil- huga hjálp í samstarfi, á ég svo miklar þakkir að gjalda, að orð mín nú verða mjög um of bæði fá og fátækleg. Kæru samstarfsmenn mínir og vinir. 7

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.