Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Blaðsíða 17
Hlutverk þessa þáttar hefir frá öndverðu ver-
ið að koma á framfæri skoðunum hlustenda á
starfsemi Ríkisútvarpsins. Hefir að vonum gætt
mikillar fjölbreytni í þeim, allt frá bitrustu
gagnrýni upp í hástemmt lof. — Þó er rétt að
segja hverja sögu eins og hún gengur, að svo
hefir virzt, að hlustendur séu öllu birgari af
bleki, þegar þeim hefir eitthvað þótt miður fara.
En þótt ekki þurfi að fjölyrða um, hve heilbrigð
og hleypidómalaus gagnrýni sé nauðsynleg, þá
virðist að minnsta kosti ekki minni ástæða til
að láta í ljós velþóknun sína á því, sem vel er
gert, enda verður ekki séð að upplýsingar um
jákvæða afstöðu hlustenda til ákveðins útvarps-
efnis eða útvarpsmanns séu ómerkari hinni nei-
kvæðu. — Frá þessu, nokkuð almenna tómlæti,
eru hinsvegar ánægjulegar undantekningar, t. d.
er íslenzkum hlustendum enn í þakklátu minni
flutningur og efni ákveðinnar útvarpssögu, sem
naut óvenjulega opinskárrar hylli hlustenda, —
nefnir óljúgfrótt fólk hin ótrúlegustu dæmi
þessu til sönnunar svo sem steinhljóð í sauma-
klúbbum, eftirvinna á skrifstofum dæmafá, og
jafnvel stefnumótum aflýst í stórum stíl, o. s.
frv. En þótt því fari víðs fjarri, að hægt sé með
sanni að krefjast svo atkvæðamikilla fórna að
jafnaði ,myndi verðskulduð viðurkenning hlust-
enda, til handa semjendum og flytjendum hins
talaða orðs í útvarpinu, óefað verða öllum aðil-
um til gagns og gleði.
Um spurningaþætti.
Spurningaþættir útvarpsins munu yfirleitt
vera mjög vinsælir af hlustendum. Mun því
svo farið, að áður en hlustendur vita af, eru
þeir sjólfir orðnir þátttakendur, samhryggjend-
ur eða samfagnendur eftir atvikum, en slíkt er
einmitt vottur hins ákjósanlega útvarpsefnis.
Eigi að síður vildi é" benda á, hvort ekki sé
lögð fullmikil áherzla á lærdómsatriði í vali
spurninganna, og þá jafnframt hætta á nokkuð
Auglýsing
Útvarpið flytur auglýsingar og til-
kynningar til landsmanna með
skjótum og áhrifaríkum hætti.
Þeir, sem reynt hafa, telja útvarps-
auglýsingar áhrifamestar allra aug-
lýsinga.
AUGLÝSINGASKRIFSTOFA
ÚTVARPSINS
Sími 1095.
4>--------------------------------4>
4>--------------------------------f
ENGINN ÁHUGASAMUR
ÚTVARPSHLUSTANDI MÁ VERA ÁN
■V ÚTVARPSTÍÐINDA
— Munið' atkvæðagreiðsluna. —
tilviljunarkenndum árangri. Ef spurningarnar
hins vegar, sumar að minnsta kosti, skírskot-
uðu meira til almennrar greindar, skýrleika og
viðbragðsflýtis í hugsun og rökvísi í ályktun-
um, hygg ég að hann yrði jafnvel enn fjölbreytt-
ari og skemmtilegri. — Eins kemur til athugun-
ar að stefna ákveðnum flokkum eða jafnvel
stéttum manna að prófborðinu. — í brezka út-
varpinu er t. d. mjög vinsæll þáttur, sem er
keppnispróf milli ýmissa barnaákóla í Bret-
landi. — Væri ekki ómaksins vert að gera til-
raun með slíkt útvarpsefni hér?
ÚTVARPSTÍÐINDI
17