Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Síða 10
LJÓÐ OG LÉTT HJAL
HLÍÐAR-JÓNS RÍMUR
Steinn Steinarr skáld orti fyrir allmörgum
árum drög að rímum, um Jón frá Hlíð. Jón var
manna skemmtilegastur og skáld gott, og lenti
£ mörgum ævintýrum á hrakningasamri ævi —
en það er önnur saga. Lítið hefir Steinn haldið
rímum þessum á lofti, þó margt úr þeim hafi
borist að eyrum ljóðnæmra manna og þannig
varðveitzt. Svo vel eru rímur þessar kveðnar, að
forráðamönnum Rímnafélagsins er hér með á
það bent, hvort höfundur þeirra væri ekki þess
maklegur að verða útnefndur heiðursfélagi þess
ágæta félags.
Það skal tekið fram, að Steinn dvelur erlend-
is um þessar mundir og er þessi mansöngur úr
einni rimunni birtur með Bessaleyfi:
Bragarföngin burtu sett,
botn í söng minn sleginn.
Situr löngum sorgum mett,
sál mín öngu fegin.
Víst þótt bágt sé viðhorf mitt
og veröld fátt mér gefi,
ei skal þrátta um það né hitt,
þig ég átta hefi.
Brautargengi brestur mig,
bót ég enga þekki,
ó, hve lengi þráði ég þig,
þó ég fengi ekki.
Lífs um angurs víðan vang,
víst ég ganginn herði.
Eikin spanga í þitt fang,
oft mig langa gerði.
Fýkur ofan fjúk og snær,
flest vill dofa Ijá mér,
myrk er stofan, mannlaus bær,
má ég sofa hjá þér.
JÁTNING
heitir nýjasta dægurlagið hans Sigfúsar Hall-
dórssonar og hefir það þegar náð miklum vin-
sældum. í óskalagaþættinum er það iðulega
flutt í meðferð Smárakvartettsins og Ingibjarg-
ar Þorbergs. Sigfús á orðið stóran hóp aðdáenda
meðal unga fólksins og þeirra, sem hafa gaman
af dægurlögum, enda er hann vafalaust snjall-
astur dægurlagahöfunda okkar. — Hér birtist
textinn við þetta lag og mun Tómas Guðmunds-
son eiga þar hlut að máli, enda sýnilegt, að
enginn hinna smærri spámanna hefir þar um
fjallað:
Enn birtist mér í draumi, sem dýrðlegt
ævintýr,
hver dagur sem ég lifði í návist þinni,
svo morgunbjört og fögur í mínum huga
býr,
hver minning um vor sumarstuttu kynni.
Og ástarljóð til þín, verður ævikveðjan
mín,
er innan stundar lýk ég göngu minni.
Enn birtist mér í draumi, sem dýrðlegt
ævintýr,
hver dagur sem ég lifði í návist þinni.
Til eru þrjár aðferðir að slá botninn í mal-
anda undir borðum:
l.Spurðu frúna til hægri handar þér, hvort
hún eigi nokkur börn. Ef hún svarar neitandi;
spurðu hana hvernig hún fari að þvi.
2. Spurðu konuna til vinstri við þig, hvort hún
sé gift. Svari hún neitandi, spurðu hana hvað
hún eigi mörg börn.
3. Spurðu frúna andspænis þér, hvort hún
eigi börn. Játi hún því, spurðu hana hvort hún
sé gift.
10
ÚTV ARPSTÍÐINDI