Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Side 12
Hvað er í
Eins og lesendur sjá, er kynning dagskrár
útvarpsins með öðrum og ófullkomnari hætti
en verið hefir, og réðu þar um ýmsar orsakir,
sem ollu því, að ókleift reyndist að hafa hana
itarlegri að þessu sinni. En það skal þegar tek-
ið fram, að framvegis er ætlazt til, að hún verði
með svipuðum hætti og undanfarin ár. Á hinn
bóginn kann það mjög að orka tvímælis, hvort
ástæða sé til, að dagskrárkynning sé mjög ná-
kvæm, heldur, að hún t. d. tilgreini aðeins það
athyglisverðasta til skemmtunar og fróðleiks
af væntanlegu útvarpsefni. — Útvarpstíðindum
er mjög hugleikið að kynnast skoðunum les-
enda sinna á þessu atriði, og telja sér bæði
ljúft og skylt að koma til móts við óskir þeirra,
svo sem í þeirra valdi stendur.
Erindaflutningur á næstunni.
Erindi dr. Alexanders Jóhannessonar háskóla-
rektors: Rannsóknir mínar um uppruna
tungumála; fyrra erindi sunnud. 1. marz;
síðara erindi sunriud. 8. marz.
Erindi séra Péturs Magnússonar í Vallanesi:
Guð og annað líf. í vikunni 8.—14. marz.
Tvö ferðaerindi Jóhanns Hannessonar kristni-
boða (frá ferðalagi hans hingað heim haust-
ið 1952). Sennilega vikurnar 8.—21. marz.
Erindi Guttorms Pálssonar skógarvarðar: Brot
úr sögu barrtrjánna á Hallormsstað. Senni-
lega vikuna 8.—14. marz.
Eggert Guðmundsson listmálari flytur erindi
um frumbyggja Ástralíu og náttúru landsins.
Sennilega vikuna 15.—21. marz.
Stefán Hannesson, kennari í Litla-Hvammi,
flytur hugleiðingu: Fara börnin versnandi?
Sennilega vikuna 22.—28. marz.
Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur flytur
tvö erindi: Úr Lóni og Hornafirði. Sennilega
vikurnar 15.—28. marz.
Filippía Kristjánsdóttir, rithöfundur, flytur er-
indi: Á víð og dreif. Sennilega vikuna 8.—
14. marz.
útvarpinu?
Sigurbjörn Einarsson prófessor flytur tvö há-
degiserindi á sunnud.: Uppruni trúarbragða.
Sennilega 15. og 22. marz.
KVÖLDVÖKUEFNI:
Henðrik Ottósson, fréttamaður, flytur erindi:
Fall Miklagarðs 1453. Sennilega 13. marz.
Frú Margrét Jónsdóttir flytur gamlar frásagnir:
Um drauma. Sennilega 13. marz.
Pétur Sigurðsson, háskólaritari, flytur frásögu-
þátt. Sennilega 13. marz.
Merkir tónleikar, sem útvarpað verður á
næstunim
FIMMTUDAGINN 5. MARZ:
Hinir vikulegu sinfóníutónleikar af hljóm-
plötum: Fiðlukonsert Op 33, eftir Karl Niel-
sen. Emil Telmany og Konunglega hljóm-
sveitin í Kaupmannahöfn leika. Stjórnandi
Egisto Tango.
„Dögun“ og „Rínarferð" Sigfrieds úr. óp.
Ragnarök eftir Wagner. Philharmoniska
hljómsveitin í New York leikur. Toscanini
stjórar.
SUNNUDAGINN 8. MARZ:
Septett op. 20 eftir Beethoven. Þetta verk,
sem er meðal vinsælustu kammertónverka,
sem samin hafa verið, var leikið á plötur
fyrir Ríkisútvarpið af þeim Agli Jónssyni
(klarinett), Hans Ploder (fagott), Herbert
Hriberschek (horn), Birni Ólafssyni (fiðla),
Jóni Sen (viola), Einari Vigfússyni (cello)
og Einari B. Waage (kontrabassi). Verk
þetta var leikið á kammertónleikum Tón-
listarfélagsins í vetur; en þeir vöktu mikla
hrifningu.
MÁNUDAGINN 9. MARZ:
Einsöngur: Einar Sturluson, óperusöngvarif
Fritz Weisshappel leikur undir á píanó.
ÞRIÐJUDAGINN 10. MARZ:
Undir ljúfum lögum; hinn vikulegi þáttur
Carls Billich. Kynnir: Jón Múli.
(
12
ÚT V ARPSTÍÐINDI