Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Side 14
Joliann Sebastian Bach
— Líf hans, list og listaverk —
Alþýðleg tónfræðsla hefur allajafna
gefizt vel í útvarpinu, og má segja, að
hún hafi vart verið stunduð sem skyldi,
einkum hin síðustu ár. í vetur hefur þó
aftur brugðið til hins betra í þessu efni,
þar eð Páll ísólfsson hefur flutt þrjú
forláta erindi um gamla tónsnillinga og
kynnt orgelverk eftir þá. Þeir þrír, Pa-
chelbel, Sweelinck og Frescobaldi, voru
allir merkir og mikilsmetnir menn síns
tíma, og list þeirra á enn í dag fullt er-
indi til almennings. En þeir voru þeim
örlögum seldir að verða fyrirrennarar
hins mikla tónmeistara, Johanns Se-
bastian Bachs, og því hafa þeir óneitan-
lega horfið nokkuð í skuggann.
Nú er Páll ísólfsson nýfarinn til
Lundúna, og í þeirri ferð leikur hann
nokkur fegurstu orgelverk Bachs inn á
hljómplötur hjá „His Master’s Voice“,
en sem kunnugt er nýtur Páll virðingar
ÁRNI KRISTJÁNSSON
píanóleikari.
JOHANN SEBASTIAN BACH
sem einn í tölu færustu Bach-túlkenda
heimsins. Það verður því lát á fræðslu-
þáttum hans í útvarpinu, en í hans stað
tekur nú við Árni Kristjánsson píanó-
leikari og ætlar að kynna hlustendum
æviferil og list Bachs.
Árni hefur íslenzkað ævisögu Bachs
eftir Johann Nikolaus Forkel, og er það
fyrsta bókin, sem rituð var um tón-
skáldið. Forkel fæddist árið fyrir dauða
Bachs, eða 1749. Hann var meðal merk-
ustu tónlistarfræðinga síns tíma og
ruddi þeim fræðum braut í Þýzkalandi
með tónlistarsögu sinni, „Allgemeine
Gesichte der Musik“, sem er gagnmerkt
rit. Ritverk Forkels um Bach endurvakti
mjög áhuga manna á tónlist Bachs, en
þsgar það kom út, höfðu aðrar nýrri
stefnur þokað henni nokkuð til hliðar.
14
ÚTVARPSTÍÐINDI