Útvarpstíðindi - 01.03.1953, Page 15
Síðan hefur hróður Bachs aldrei dvínað
og lengstum verið sívaxandi, enda er
hann viðurkenndur sem mesta tónskáld
lútersku kirkjunnar og e. t. v. mesta
tónskáld allra tíma. Hann hefur verið
kallaður fimmti guðspjallamaðurinn,
og um hann sagði Schumann þetta:
„Tónlistin á honum jafn mikið að þakka
og trúarbrögðin meisturum sínum.“
Hlustendum verður efalaust mikill
fengur að ævisögu Bachs í þýðingu Árna
Kristjánssonar, sem er hinn ágætasti
fyrirlesari. Hann flytur söguna nokkuð
stytta á 5—6 kvöldstundum og velur þá
jafnframt til flutnings tónverk eftir
Bach. fyrsti kaflinn verður á dagskrá
þriðjudaginn 10. marz.
DAGSKRÁRNÝUNGAR
Maðurinn í brúnu fötunum hefur nú sagt
skilið við útvarpshlustendur, eftir langa og við-
burðaríka samveru. Ekki mun enn þá fylli-
lega ákveðið, hvað tekur við; en þó munu
hlustendur væntanlega fá nokkra hvíld frá
„spennandi" útvarpssögum. Er í ráði að á næst-
unni hefjist nýr flokkur, að loknum lestri
kvöldfrétta, og þá sennilega lestur fornrita og
valdir minningaþættir. Enn fremur er í ráði,
að á næstunni hefjist nýr þáttur kl. 7, er nefnist
Merkir samtíðarmenn. Verða þá fluttir stuttir
æviþættir ýmissa þeirra manna, er mjög hafa
komið við sögu. Því miður er enn allt í deigl-
unni um þessar dagskrárnýjungar; en vonandi
geta Útvarpstíðindi kynnt þær nánar í næsta
hefti.
Seint mun linna lofi og prís um útvarpið fyr-
ir að láta ræður hefjast réttstundis, og þá ekki
síður fyrir að lúka þeim samkvæmt áætlun!
Slík dáð verður ekki drýgð nema einu sinni á
hnattævi.
♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Ríldsútvarpið
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til allra þegna landsins með
hvers konar fræðslu og skemmtun, sem
því er unnt að veita.
Aðalskrifstofa útvarpsins annast um af-
greiðslu, fjárhald, útborganir, samninga-
gerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega
til viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrif-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra
4990.
Innheimtu afnotagjalda annast sérstök
skrifstofa. Sími 4998.
Útvarpsráðið (Dagskrárstjórnin) hefur
yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi
og velur útvarpsefni. Skrifstofag er opin
til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síð-
degis. Sími 4991.
Fréttastofan annast um fréttasöfnun
innanlands og frá útlöndum. Fréttaritarar
eru í hverju héraði og kaupstað landsins.
Sími fréttastofu: 4994. Sími fréttastjóra:
4845.
Auglýsingar. Útvarpið flytur auglýsing-
ar og tilkynningar til landsmanna með
skjótum, áhrifaríkum hætti. Þeir, sem
reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar á-
hrifamestar allra auglýsinga. — Auglýs-
ingasími 1095.
Verkfræðingur útvarpsins hefur dag-
lega umsjón með útvarpsstöðinni, magn-
arasal og viðgerðastofu. Sími verkfræð-
ings er 4992.
Viðgerðarstofan annast um hvers konar
viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir
leiðbeiningar og fræðslu um not og við-
gerðir viðtækja. Sími viðgerðarstofunnar
4995.
Takmarkið er: Útvarp inn á hvert heim-
ili! Allir landsmenn þurfa að eiga kost
á því að hlusta á æðaslög þjóðlífsins;
hjartaslög heimsins.
Ríkisútvarpið.
ÚTVARPSTÍÐINDI
15