Útvarpstíðindi - 14.06.1948, Page 16
256
ÚT V ARPSTÍÐINDI
^ * 1 M M W Ai—
Austfirðingur skrifar: „Nú þykir mcr
dagskrá útvarpsins heldur vera farin að
þynnast, og segja má að fátt hafi verið
þar um fína drætti að undanförnu, sem
orð sé á gerandi, að undanteknum þeim
hvalreka, sem varð á fjörur útvarpsins,
þegar norsku leikararnir og skáldið
Arnulf Överland las þar upp. Óneitan-
lega voru þessir upplestrar mikil til-
breytni. Það eina, sem á skorti er, að
ekki nærri allir hlustendur hafa skilið
Norðmennina, en það er hvorki upples-
aranna eða útvarpsins sök. Aftur á móti
var mikill fengur að fá að heyra í þess-
um norsku gestum fyrir þá, sem skilja
norskuna, Og seint mun mér gleymast
hinn sköruglegi ljóðaflutningur Arnulfs
Överlands.
Annars varð mér hugsað til þess, þeg-
ar ég hlustaði á hann lesa ljóð sín,
hversu útvarpið er ákaflega sparsamt
á okkar eigin skáld. Annað hvort er það
útvarpið, sem er sparsamt á þau, eða að
skáldin eru sjálf svona spör á sín and-
legu verðmæti. Það eru teljandi þau
skipti, sem íslenzk skáld koma fram í
útvarpinu með frumsamið efni, nema
þá helzt í auglýsingáskyni um það leyti,
sem kemur út bók eftir þau.
Hvernig væri, að útvarpað væri t. d.
einni symfóniunni minna á mánuði, en
í þess stað kæmi skáld eða rithöfundur
og læsi upp úr verkum sínum?“
Kaupandi Útvarpstíðinda á Siglufirði
skrifar blaðinu á þessa leið: „Ég vil
þakkaútvarpstíðindumfyrir hina ágætu
og fróðlegu grein, sem þau birtu nýiega
um útvarpsstarfsemi Norðmanna, og um
leið láta í ljósi þá von mína, að ritið
sjái sér fært að birta fleiri slíkar grein-
ar um erlendar útvarpsstöðvar og út-
varpsstarfsemi.
Það mundi gera útvarpsnotendum hér
heima hægar um vik, að átta sig á því,
hvar okkar eigið útvarp stendur í sam-
anburði við útvarpsstarfsemina í öðrum
löndum. Að vísu þykjumst við vita, að
útvarpsstarfsemin hljóti að vera öflugri
og fjölbreyttari með stórum þjóðum en
hér, og að sjálfsögðu er ekki hægt eða
sanngjarnt að krefjast jafnmikils af
Ríkisútvarpinu hér og stórum og full-
komnum útvarpsstöðvum meðal milljóna
þjóða. En samt sem áður ætti útvarpið
okkar margt að geta hagnýtt sér og
lært af starfsemi erlendra útvarps-
stöðva, og ég efa heldur ekki, að for-
ráðamenn útvarpsins hafi vakandi auga
með því, sem gerist á hverjum tíma í
radíoheiminum.
Sérstaka athygli mína vakti hinn
mikli f jöldi útvarpsstöðva í hinum ýmsu
bæjum víðsvegar um Noreg, sem getið
er um í umræddri grein, en sennilega
verður langt að bíða, þar til slíkt út-
varpskerfi verður komið hér á landi,
en sannarlega er það orðið tímabært,
að hinir stærri bæir gætu hafið útvarps-
sendingar".
Nýir kaupendur Ötvarpstíðinda athugið
Þeir, 8em gerast áskrifendur ÚtvarpstíSinda nú, og senda áskriftar-
gjaldiS fyrir yfirstandandi árgang, 25 krónur, fá síðasta árgang ritsins
ókeypis, meðan upplagið endist.
Ennfremur er atliygli kaupenda vakin á því, að Útvarpstíðindi eiga
að greiðast fyrirfram, hver árgangur, og eru þeir því góðfúslega beðnir
að greiða póstkröfurnar strax og þær berast.