Prentarinn - 01.01.1969, Síða 12

Prentarinn - 01.01.1969, Síða 12
Islenzk dagblöö Úp fypíplestri Eli Reímer I Norræna húsinu Blaðaprent er eitt af þeim sviðum, þar sem unnt er að tala um þjóðlcg, eða kannske réttara sagt stað- bundin, sérkenni. Sé brugðið út af þessum sérkenn- um, verður það gjarnan til þess að allir fara af stað, þannig að hvert blaðið af öðru lagar sig að nýja svipmótinu, sem vera má að eitthvert forustu- blaðið (í útbreiðslu) hafi byrjað með. Greinilegur munur er þannig á norskum, sænskum, dönskum, þýzkum, frönskum og enskum blöðum, þótt þess gæti nokkuð á síðari árum að þau sérkenni hafi dofnað. Blöð á Islandi bera einnig sinn sérstaka svip, meðal annars vegna yfirgnæfandi notkunar stein- skriftar-leturs í fyrirsögnum (næstum eins og það sé einrátt). Ennfremur kemur dönskum áhorfanda smáa brotið fyrir sjónir sem sérkenni, og sé litið á smærri atriði, virðist mikil notkun feits leturs í meginmáli sameiginlegt einkenni, sem oft getur valdið því að dálkarnir virðast ofsvertir og síðurnar flekkóttar. Þegar komið er frá Danmörku, þar sem stöðluð brot á blöðum tryggja, með einstökum undantekn- ingum, innflutning á samkynja blaðapappir, vekur furðu að blöðin á Islandi skuli næstum hvert og eitt hafa sitt sérstaka brot, einkum þegar jafn lítill munur er á broti og raun ber vitni. Alþýðublaðið: Stórar fyrirsagnir setja svip á blaðið, og ásamt því, að loft er hvergi sparað, gera þær blaðið frckar skýrt og auðlesið, — þrátt fyrir mjög slæma prentun. Setningar- og umbrotsreglur eru vel útfærðar, og auðvelt að gera sér grein fyrir prentstefnu blaðsins. í umbroti er reynt við blokkumbrot, en greinar þó brotnar hver inn i aðra. Á innsíðum má oft rekast á skemmtilega útfærð- ar umbrotshugdettur og tilraunir sem þó heppnast misjafnlega — og á léleg prentun einnig sinn þátt í því. Sérefni er auðkennt með afbrigðilegri uppsetn- ingu eða afmarkað nteð sterkum bylgjuramma. Baksíðan er helguð skemmtiefni, sem er auðkennt með sterkum haus og föstu umbroti. (Atli.: Þessi blaSakönnun fór fram áður en útliti blaðsins var breytt til þess, sem nú er. Morgunblaðið: Umbrot á forsíðu og fréttasíðum fer eftir hefð- bundinni umbrotsreglu, þar sem greinar eru brotn- ar hver inn í aðra, svo fyrirsagnir falli ekki saman. Á innsíðum bregður fyrir skemmtilegum sprettum og oft á tíðum fallegum opnum. Mikill ljóður á blaðinu er, að hausar sérefnasiðna eru yfirleitt eins, eins og til dæmis á kvennasíðum og sjómannasíðu. Þrátt fyrir að augljóst niá telja, að nýjasta Parísartízka á ekkert skylt við sjó- mennsku. Þannig er notkun svartra flata með nega- tívu letri of mikil og ráðandi. Þá má segja, að Morgunblaðið gæti verið sam- nefnari fyrir þá tilhneygingu að setja framhöld af fréttasíðum um allt blað, án nokkurrar reglu. Þannig eru framhöld af baksíðu iðulega á 2. síðu blaðsins, framhöld af forsíðu á næstöftustu síðu og af innsíðum eru framhöld um allt blað. Þetta skap- ar erfiðleika fyrir lesendur og tilhneygingu til að sleppa lestri framhalda. Þrykking og svertun blaðsins er góð og mynd- prentun á háu blaðastigi. Tíminn Unibrot á útsíðum: Fyrirsögn og meginmál sett upj) í blokkir og raðað á síðuna í reglulegum, fer- hyrndum reitum. Á innsfðum er sérefni afmarkað með sterkum römmum, misstórum svörtum flötum með negatívu letri og mismunandi dálkabili án strika. Miðopnan er stillileg að svipmóti og stingur þægilega í stúf við órólegu síðurnar framan og aftan á blaðinu. Umbrot er fremur einhæft og notkun sterks let- urs og nonpareille-ramma áberandi. Prentun: Léleg þrykking og svertun. Vísir í umbroti á forsíðu og baksíðu er sótzt eftir sam- þjöppuðum heildaráhrifum, þar sem greinarnar á síðunni eru samtengdar, m. a. með misvíxlun dálka og „girðingar" úr sterkum strikum undirstrika sam- tengingaráhrifin. Ofnotkun sterkra ramma, m. a. með of mörgum á sfðu, er áberandi. Vísir hefur það fram yfir hin islenzku blöðin, að hann gerir mikið til að auðvelda lesandanum lest- urinn, svo sem með því að safna efnisflokkum á ákveðnar síður og auðkenna þær með uppsetningu, föstum haus eða leturvali. 10 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.