Prentarinn - 01.01.1969, Side 20

Prentarinn - 01.01.1969, Side 20
Pjetur Stefánsson sextugur I>að er sagt, að eldra fólk finni meira fyrir hraða tfmans en þeir, sem enn eru ungir að árum, og virðast menn sakna meir hvers áratugs, sem liðinn er þegar aldur færist yfir. Pjetur Stefánsson, starfsmaður HIP, varð sextug- ur 1(). júnf s. 1. Hann er fæddur l(i. júní 1909 í Sauðagerði í Reykjavík, sonur hjónanna Stefáns sjó- manns Jónssonar hónda og hreppstjóra í Galtar- holti í Mýrasýslu og Ingibjargar Jónsdóttur bónda að Hömrum í Þverárhlíð í Mýrasýslu. Árið 1923 hóf Pjetur prentnám í Félagsprent- smiðjunni og lauk þar námi 1. maí 1928, en j>á var námstími í prentiðn fjögur og hálft ár. Síðan gerð- ist hann vélsetjari og vann við það starf óslitið fram að þeim tfma, að hann gerðist starfsmaður Hins íslenz.ka prentarafélags fyrir fimm árum. ]>að hittist svo á, að ég, sem þessar línur rita, hóf prentnám sama dag og Pjetur varð sveinn, og urð- unt við nánir samstarfsmenn við prentverk hálfan annan áratug og einnig um áratugaskeið við marg- vísleg félagsstörf. Er margra áuægjulegra stunda og atvika að minnast frá þessum árum, jrótt hér verði ekki rakið. En eitt af því, sem mér finnst sérstætt um Pjetur Stefáusson fram yfir marga aðra menn, er það, hve auðvelt hann á með að sjá hlutina frá sjónarhorni |ress, sem hann á skipti við hverju sinni. Þessi eiginleiki gerir hann sanngjarnan og jtýðan í samvinnu og samskiptum. Pjetur Stefánsson er í eðli sínu hagur og útsjónar- samur og á auðvelt mcð að skilja gang véla og alls þess, sem hreyfist og snýst, og hann hefði átt margra kosta völ á þeirri vélaöld, sem nú er. Ég hef mörg- um ágætum vélsetjurum kynnzt, en fáir eru þeir, sem hafa skilið gang eða „sál" vélarinnar eins vel og Pjetur. Af þessum sökum var sérlega ánægjulegt að vinua á móti honum á setningarvél. Til félagsmála prentara hefur Pjetur Stefánsson lagt mjög drjúgan skerf. Hann hefur átt sæti í stjórn Hins íslenzka prentarafélags um tnörg ár, hefur skipað þar öll sæti, verið formaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Hann var lengi meðritstjóri Prentarans og hefur átt sæti í nefndum HÍP, verið fulltrúi þess erlendis og setið á þingum Alþýðu- sambands íslands sem fulltrúi prentara. Um öll þessi störf, sem l’jetur hefur unnið fyrir prentara- stéttina, má segja það sama, hann sjálfur og félags- skapurinn hefur vaxið með þeim. Auk þess var l’jetur í meira en áratug gjaldkeri Byggingarsamvinnufélags prentara, og vann það umfangsmikla starf eingöngu í tómstundum. Var hann mikilsvirtur í j)ví ábyrgðarmikla starfi og vann jrað af öryggi og gætni. Hlaut hann jafnan lof endurskoðenda fyrir nákvæmni og vandaðan frá- ga»g- Pjetur Stefánsson er gæddur góðlátlegri kímnigáfu og beitir oft hóflegri gamansenti í hópi félaga og vina. Hann kattn vel að gleðjast nteð glöðuin og nýtur jress að vera í hópi valdra vina. En alvaran og íhyglin mun þó vera ráðandi í skapgerð Pjeturs, og á rólegum kvöldstundum heima hjá sér, þegar ekki er öðru að sinna, hefur hann sér það til ánægju að velta fyrir sér reikningsdæmum og vandamálum. Þessi vandamál snerta sjaldnast sjálf- an hann, heldur félagana og stéttarheildina. Þannig er hann sofinn og vakinn í þeim störfum, sem hon- um hafa verið falin. Pjetur er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Pálínu Páls- dóttur, missti hann árið 1960, eftir langa og góða sambúð. Síðari kona hans er Ásta Guðmundsdóttir kaupmanns og byggingarmeistara Egilssonar. Eiga þau hjón indælt heimili, smekklega búið, þar sem gott er að koma. Um leið og ég jrakka l’jetri störf hans á liðnum tíma, vona ég, að íslenzk premarastétt megi enn um langt árahil njóta starfskrafta hans. EUert Ag. Magnússon. 18 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.