Prentarinn - 01.01.1969, Qupperneq 22

Prentarinn - 01.01.1969, Qupperneq 22
Gestaboð við Eyrarsund Góðra vina fundur Hinn 12. júni í sninar voru liðin liundrað ár frá stofnun dönsku prentarasamtakanna og jafnframt elztu stéttarsamtaka verkafólks í Danmörku. Af þessu merka tilefni efndi Kaupmannahafnardeild danska prentarasambandsins (en það voru prentarar í Kaupmannahöfn, sem fyrstir stofnuðu prentara- félag) til mikilla hátíðahalda. Voru þau vandlega undirhúin, enda fjölbreytt og hin veglegustu i alla staði. Heimild var til að verja í þessu skyni allt að 1 milljón danskra króna. Mörgum erlendum og innlendum bókagerðarsam- böndum og -félögum var boðið að senda fulltrúa til hátíðahaldanna og voru gestir frá eftirtöldum þjóð- um og samtökum komnir á vettvang mánudaginn 9. júní: Frá Alþjóðasambandi bókagerðarmanna (I.G.F.), Heinz Göke aðalritari, frá Belgíu, Englandi, Frakklandi, býzkalandi, Austurríki, Sviss, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi. Voru flestir fulltrú- anna ásamt eiginkontim. Fjölmennastir voru Svíar, því auk Alderins formanns sænska prentarasam- bandsins og konu hans voru tveir fulltrúar frá Málmey og eiginkona annars. Málmeyjarprentarar virðast eiga sérstakt rúm í hugum stéttarbræðranna x Kaupmannahöfn. Þar hafa samskiptin milli landa verið mest og samstarfið bezt í gegnum árin, einkum hernámsárin. En þetta á ekki aðcins við um prent- arasamtök þessara staða, heldur og önnur verka- lýðssamtök þeirra. Enn lifa vel í glóðum minning- anna mannraunir striðsáranna og hjálpin, sem stenskir verkamenn og andfasistar veittu dönsku fólki á flótta þess úr blóðgreipum þýzka nazismans. Frá Noregi voru komnir til fagnaðar Reidar Langás, varaformaður norska bókagerðarsambands- ins og kona hans, einnig John Sand formaður prent- arafélags Oslóborgar og kona hans. Frá Finnlandi voru komnir tveir ungir inenn og kona annars. Stjórn Hins íslenzka prentarafélags ákvað á sínum tíma að taka afmælisboði dönsku stéttarbræðranna og bauð undirrituðum ásamt konu hans að mæta til hátíðarinnar. Til Marienlyst Við komtim að morgni hins 9. júní til Kaup- mannahafnar með Gullfossi. Það stóðst á enduin, að hinir erlendu gestir voru að safnast saman í forsöl- um Hótel Imperial, þegar við komum þangað. Þeir höfðu flestir komið kvöldið áður. Nú hófst stutt bið eftir fjölmennisvagni, sem lagði leið sína að Marien- lyst á Helsingjaeyri. — Þar er konungleg höll, — gömul og ný salarkynni, í yfrið fögru umhverfi, — liggur að strönd Eyrarsunds. Þarna runnu í hlað 27 fjölmennisvagnar með 1050 manns, prentara og konur þeiria, auk erlendra og innlendra gesta. Þetta var ellideild prentarasam- Fni Marienlyst. takanna, þeir sem komnir eru á lífeyiisaldur og goldið hafa torfalögin. Máske var þessi fagri sum- ardagur og þetta gestaboð, glæsilegasta fagnaðar- stundin í hátíðahöldum dönsku prentaianna og var jxó margt eftir góðra stunda. Auk svignandi veizlu- borða, sem engir kunna Dönum betur að hlaða og skieyta, var flutt fjölbreytileg og lifandi skemmti- list og sungin frumsamin fagnaðarljóð. Stutt ávarp var flutt af formanni Kaupmannahafnardeildar, Louis Andersen og hátíðaræða afformanni prentara- sambandsins, Henry Nielsen. I lok ræðtt sinnar til- kynnti Nielsen að hver cinasti lífeyrishafi, sam- bandsins, — en Jreir eru sextán hundruð, — hlyti hundrað króna hátíðargjöf frá prentarasamband- inu. 20 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.