Prentarinn - 01.01.1969, Síða 26

Prentarinn - 01.01.1969, Síða 26
Bandaríkin Þegar á heildina er litið, hefur verð á bilum í Bandaríkjunum haldizt stöðugt síðustu tíu árin, þó að kaup starfsmanna í bílaiðn- aðinum liafi á sama tíma hækkað um sextíu og fimm af hundraði. Verð á útvarps- og sjónvarpstækj- um, ryksugum og þvottavélum hef- ur á síðustu tfu árum lækkað um frá fjórum upp í tuttugu og þrjá af hundraði; aftur á móti hefur kaupgjald í þessunt greinum bandarísks iðnaðar hækkað um fjörutfu og fimm af hundraði að meðaltali. betta eru dæmi um hvernig hagræðing hjá fyrirtækj- unum getur orðið launþegum og neytendum til hagshóta. Sama máli gæti vafalaust gegnt um prentiðn- aðinn, en þar er verðlagið „ekki á almanna vitorði". Veruleg útþensla hefur orðið síðasta áratug f blaðaiðnaðinum bandaríska. Tala starfsmanna blaðaútgáfufyrirtækja hækkaði á þessu tímabili um rúmlega átján af hundraði og komst yfir 350.000. Upplag allra dagblaða, sunnudags- blaða og vikublaða hækkaði um 13 af hundraði, auglýsingatekjur uk- ust um 54 af hundraði og tekjnr af sölu blaðanna uin rúmlega 60 af hundraði. Blöðin hirða lang- stærsta hlutann, eða 30 af hundr- aði, að því fjármagni sem varið er til auglýsingastarfsemi, þetta er næstum helmingi meira en kemur í hlut sjónvarpsins. í prentiðnaði Bandaríkjanna hefur kaupgjald iðnaðarmanna og skrifstofufólks hækkað um samtals 621.277.000 dollara á árunum frá 1958 til 1966 - sem sé úr 1.499.939.000 dollurum (1958) í 2.121.216.000 dollara (1966). Hluti starfsmanna við blaðaframleiðslu af þessari upphæð var 1.091.374.000 dollarar árið 1966. Á tímabilinu 1958 til 1966 jókst notkun dagblaða, sunnu- dagblaða og vikublaða á blaða- pappír úr 6.615.000 lestum í 9.132.000 lestir á ári. I Bandaríkjunum eru sem stend- ur gefin út 11.000 dagblöð og viku- blöð. Tæpur helmingur, eða 5000, ■er offsetprentaður. Rflunveruleg daghlöð eru 1750 talsins, og af þeim erti milli 400 og 500 prentuð í offset. Bandarískir prentfræð- ingar gera ráð fyrir, að á næstu tíu árum hækki hlutdeild offset- prentaðra dagblaða úr 26 af hundraði af blaðamagninn í um Jjað hil 70 af hundraði. Viðskiptaráðuneyti Bandaríkj- anna hefur kunngert, að þau bandarísk fyrirtæki sem framleiða vélar og tæki til notkunar í prent- iðnaði hafi á árinu 1968 aukið út- flutning sinn um fimm af hundr- aði upp í rúmlega 100 milljónir dollara. Verðmæti prentvéla cinna, sem fluttar voru út á fyrra misseri 1968 nant 30.3 milljónum, og fór mestur hluti þeirra til Evrópu. Ástralía Ekki nema um 30 af hundraði af bókum sem seldar eru í Ástralíu eru unnar í landinu sjálfu, mikill hluti er prentaður í Hongkong. Á síðustu fimm árum jókst innflutn- ingur prentaðs máls frá Hongkong um 300 hundraðshluta. Fram- leiðslukostnaður f Hongkong er svo lágur, að innflutningur á bók- um framleiddum í Bretlandi og Bandaríkjunum minnkar jafnt og þétt. í prent- og pappírsiðnaði Ástral- íu starfa nú 2970 fyrirtæki. Heildar launagreiðslur til allra 87.000 starfsmannanna nema 230 milljón- um ástralskra dollara. Samkvæmt skýrslum vinnumála- ráðuneytisins hefur tala starfs- manna í prentiðnaðinum í heild hækkað um tíu af hundraði f Ástralíu sfðustu fjögur árin. Þessi tala er nokkuð hærri en f áströlsk- um iðnaði sem heild. Sömu skýrsl- ur bera með sér, að í prentiðnaði Ástralíu starfa um 50.400 launþeg- ar. í starfsgreinunum myndamóta- gcrð og vélsetningu var aukningin nokkru meiri en tín af hundraði, í öðrum greinum prentiðnaðar var aukningin rétt tíu af hundraði eða innan við það. Finnland Árið 1968 voru framleiddar í Finnlandi 2,6 milljónir lesta af pappír. Þar af nam útflutningur sama ár 2,2 milljónum lesta, mið- að við næsta ár á undan var um að ræða aukningu um einn tíunda, þvf 1967 nam pappírsútflutningur- inn sléttum tveim milljónum lesta. Gert er ráð fyrir að árið 1975 kom- ist pappfrsframleiðsla Finna upp i fjórar milljónir lesta. Holland Heildarútflutningur prentiðnað- arins í Hollandi árið 1968 nam 270 milljónum gyllina. Það er aukning sem nemur 8,5 af lnindr- aði miðað við árið 1967. Aftur á móti var aukningin minni en næsta ár á undan, því miðað við 1966 jókst útflutningur hollenzks prentiðnaðar um 11 af hundraði árið 1967. Heildarvelta prentiðn- aðarins í Hollandi 1968 er talin tveir milljarðar gyllina, sem er 7,5 af hundraði aukning frá 1967 — á því ári nant aukningin 6,2 af hundraði miðað við 1966. (Úr tímariti IGF). 24 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.