Prentarinn - 01.01.1969, Qupperneq 28
Aðalfundup
HlP 1969
Aðalfundur HÍP var haldinn 13. apríl að Óðins-
götu 7 og hófst kl. 14.00. Enginn fulltrúi kom frá
Akureyrarprenturum og var þess saknað. Las gjald-
keri, Pjetur Stefánsson, reikninga félagsins og skýrði
þá. Voru þeir samþykktir athugasemdalaust. I>á
flutti gjaldkeri tvær tillögur fyrir hönd stjórnar, var
önnur um kr. 15.000,00 styrk til bókasafnsins og hin
um skiptingu gjalda félagsmanna. Var þar sú breyt-
ing á, að félagsgjaldið, sem miðað er við 3% af viku-
kaupi, hafði hækkað um 12 krónur, og skyldu þær
renna til 2ja sjóða, kr. 2,00 til Styrktarsjóðs og kr.
10,00 til Tryggingasjóðs. Framlag til hans var áður
kr. 10,00.
I’ormaður, Jón Ágústsson, flutti skýrslu stjórnar
síðasta starfsárs, hafði ekki tekizt að koma Prentar-
anum út með skýrslunni ýmissa orsaka vegna.
Skýrði formaður frá því, að þegar atvinnuleysi var
mest í stéttinni á síðastliðnum vctri, hefðu 18 félag-
ar verið á atvinnuleysisskrá. Ákvörðun hefði verið
tekin um að Prentaratalið yrði gefið út í tilefni 75
ára afmælis HÍP árið 1972.
Samningamálin ræddi forinaðuir mikið, enda
kannski það málið sem beinast snertir hvern félaga.
Höfðu umræður staðið á milli samninganefnda að
tilhlutan sáttasemjara frá þvi seinni hluta febrúar.
HÍP tók þátt í 2ja daga verkfallinu ásamt öðrum
verklýðsfélögum í Reykjavík og nágrenni. Sagði for-
maður, að þessar samningaviðræður færu fram með
allt öðrum hætti nú en áður, og ekki væri sjáanlegt
breyting á enn sem komið væri. Væru forsendur fyr-
ir veru hans í nefndinni fallnar ef krafan um vísi-
tölu á laun yrði ekki grundvöllurinn að áframhald-
andi samningaviðræðum.
Formaður lýsti tillögu um húsnæðismál félagsins
frá stjórn, Fasteignanefnd og Laganefnd, sem var af-
greiðsla á tillögu, er fjórir félagar fluttu á aðalfundi
1968. Var gert ráð fyrir í tillögu stjórnar, að félagið
ætti áfram húseignina Hverfisgötu 21, enda sé nægi-
legt húsrými fyrir starfsemi félagsins þar.
Skýrslur nefnda
í skýrslu samstarfsnefndar bókagerðarfélaganna
kom m. a. fram, að ástæða væri að hyggja að sam-
einingu félaganna, annað hvort i samband allra
félaganna eða í eitt félag bókagerðarfólks. Hafði
nefndin einnig rætt um, að næsta Prentaratal yrði
gefið út af félögunum sameiginlega og tekin með
nöfn allra þeirra, sem unnið hafa við bókagerð i
landinu.
í skýrslu bókasafnsnefndar var þess getið að að-
staða safnsins væri að breytast til batnaðar þar sem
bókasafnið hefði fengið herbergi til viðbótar i
kjallara hússins og það gert eldtraust. Einnig hefðu
gömlu húsgögnin verið fengin af skrifstofu félagsins.
Væri því mögulegt að hafa þarna vistlega lestrar-
stofu.
Fasteignanefnd sér um allt viðhald fasteigna fé-
lagsins og annast allar framkvæmdir við sumarbú-
staðaland félagsmanna i Miðdal. Kemur fram i
skýrslu nefndarinnar, að framlengdar hafa verið
vatnsæðar á svæðinu til þeirra bústaða, sem í bygg-
ingu eru og hafa verið. Nefndin hefur hug á að
halda áfram skipulagi svæðisins útfrá því hæðamæl-
ingakorti, sem lokið er að gera yfir svæðið. Auk
þessa er svo viðliald húseignarinnar að Hverfisgötu
21.
í skýrslu, sem talsmaður skemmtinefndar flutti,
kom fram að nefndarmenn voru ekki allskostar
lukkulegir með félaga sína. Þeir sýndu starfsemi
nefndarinnar engan áhuga. Fluttu þrír þeirra því
tillögu um breytingu á skipan og starfi skemmti-
nefndar. Skyldi hún nú lieita „Menningar-, fræðslu-
og skemmtinefnd" og annast J)á starfsemi sem
skemmtinefnd hafði áður með að gera, en auk þess
umræðufundi um landsins gagn og nauðsynjar.
Nefndin skyldi skipuð þrem mönnum. Var tillögu
þessari vísað til stjórnar og Laganefndar.
í umræðum sem fram fóru um skýrslu stjórnar og
nefnda var einkum rætt, hvort draga ætti fulltrúa
bókagerðarfélaganna út úr hinni svokölluðu 16-
mannanefnd ASÍ. Kom fram tillaga um það, sem
var felld, þar sem dagskrártillaga, sem samþykkt var,
gerði ráð fyrir að henni yrði vísað frá.
Stjórnarskipti
Samkvæmt lagabreytingum sem samþykktar voru
á aðalfundi félagsins 1968, var nú í fyrsta skipti
26
PRENTARINN