Prentarinn - 01.01.1969, Page 29

Prentarinn - 01.01.1969, Page 29
kosið trúnaðarmannaráð skipað 10 mönnum auk stjórnar og varastjórnar, eða 21 maður. Aðeins einn listi kom fram við stjórnarkjör og er stjórnin þann- ig skipuð: Formaður: Jón Agústsson Varaformaður: Finnbjörn Hjartarson Ritari: Þórólfur Daníelsson Gjaldkeri: Pjetur Stefánsson 1. meðstjórnandi: Ólafur Emilsson 2. meðstjórnandi: Magnús J. Matthíasson Varastjórn skipa auk varaformanns, sem sæti á í aðalstjórn: ritari Baldur Aspar, gjaldkeri Sverrir Kjærnested, 1. meðstj. Þorsteinn Marelsson og 2. meðstj. Þorbjörn Friðriksson. Aðalmenn í trúnaðarmannaráði eru þessir: Árni Guðlaugsson Björgvin Ólafsson Ingimundur B. Jónsson Jón Már Þorvaldsson Óðinn Rögnvaldsson Ólafur Ingi Jónsson Óskar Guðnason Óskar Samsted Sigurður Pétursson Stefán Ögmundsson. Varamenn eru: Ellert Ag. Magnússon Hilmar Karlsson Jón B. Magnússon Lúther Jónsson Þórður I. Sigurðsson. Endurskoðendur voru kosnir Helgi Hóseasson og Ólafur Hannesson. Til vara voru kosnir Birgir Sig- urðsson og Gísli Guðjónsson. Ritstjórar Prentarans: Guðjón Sveinbjörnsson og Haukur Már Haraldsson. í Fasteignanefnd var Sigurður Guðgeirsson end- urkosinn. Garðstjóri: Friðrik Ágústsson. í Bókasafnsnefnd voru kosnir: Ólafur Björnsson og Brynjólfur Björnsson. Fyrir í nefndinni er Stefán Ögmundsson. Fulltrúi í stjórn Byggingarfélagsins Miðdalur hef- ur verið undanfarin ár Pjetur Stefánsson og var hann endurkosinn. Samkvæmt tillögu frá stjórn félagsins um að kjósa þrjá menn f Laganefnd og samþykkt var á fundinum, voru kosnir: Ellert Ág. Magnússon, Ósk- ar Guðnason og Stefán Ögmundsson. Stjórnin til- nefnir úr sínum hópi tvo menn til viðbótar. í skemmtinefnd voru kosnir: Haukur Már Har- aldsson, Hilmar Eysteinsson, Jóhannes Eiríksson, Trausti Finnbogason og Stefán Ævar Guðmundsson. PRENTARINN Lagabreytingar Undir 8. lið dagskrár komu fram tvær tillögur og voru þær báðar frá stjórninni. Var önnur frá stjórn og Laganefnd um afgreiðslu á tillögu Jóns Otta Jónssonar og Birgis Sigurðssonar, er borin var upp á aðalfundi 1968 og gerði ráð fyrir breytingum á reglugerð Fasteignasjóðs HÍP. Lagði stjórnin og Laganefndin til „að stjórn HÍP og Laganefnd sé falið að undirbúa breytingar á lögum félagsins, þannig að tekið sé upp í 32. grein laganna hverjar nefndir skuli kjósa, hvernig þær séu skipaðar og hvert sé starfssvið þeirra, og leggja tillögur þar um fyrir næsta aðalfund HÍP. Enn fremur verði teknir til athugunar möguleikar á því að hafa mann við störf fyrir Orlofsheimilið og sumarbústaðahverfið í Miðdal yfir orlofstímann .. Hin tillagan var sú, að fá aðalfundarsamþykki fyrir þvi að HÍP gerðist aðili að Nordisk Typograf- Union — samtökum norrænna prentara. Kom fram í umræðum um þetta mál, að á undanförnum tveim ráðstefnum NT-U höfðu íslenzkir prentarar átt þar áheyrnarfulltrúa. Þessi samtök komu á fót verkfalls- sjóði, sem nú er orðinn um 2 millj. sænskra króna og í vinnudeilum veita þau styrk úr honuin kr. 10,00 sænskar á viku á hvern meðlim i allt að 13 vikur. Á árlegum ráðstefnum þessara samtaka ráða menn ráðum sínum og bera saman bækurnar. Báðar voru þessar tillögur samþykktar samhljóða. Undir síðasta lið dagskrár, ýmis mál, komu fram þrjár tillögur: Að veita prentarakonum 1.500 m2 lóð í bústaðalandi prentara i Miðdal. Að fela stjórn og Fasteignanefnd að setja reglur um takmörkun bifreiðaaksturs um sumarbústaðahverfið i Miðdal. Voru þær báðar samþykktar. Þriðja tillagan var um takmörkun aukavinnu um helgar. Urðu umræður um þessa tillögu, en hún var felld með 18 atkvæðum gegn 10. Fleira var ekki tekið fyrir og þakkaði formaður fundarmönnum þolinmóða fundarsetu. — Þ. Dan. 630 mllljón kp. pöntun Með því að fjárfesta í fjögurra lita Rotafolio- prentvélum fyrir sem svarar 630 milljónum íslenzkra króna, telur framkvæmdastjóri Sun Printers Ltd. ( Englandi, að fyrirtæki hans hafi tryggt sér áfram prentun hins þekkta kvennablaðs Vogue og fleiri stórra tímarita. Prentun þessara blaða i flatpressum skilaði ekki lengur hagnaði og hann taldi líklegt að útgefendur blaðanna hefðu að öðrum kosti látið prenta þau í offsetsmiðju. Rotafolio er hverfivél fyrir hæðarprentun, smiðuð af Koenig 8c Bauer í V.-Þýzkalandi. (Grafik revy). 27

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.